HomeFréttirLeikir dagsins: Haukar fá toppliðið í heimsókn - Fallslagur í Hveragerði

Leikir dagsins: Haukar fá toppliðið í heimsókn – Fallslagur í Hveragerði

Í kvöld lýkur 26. umferð í Iceland Express deild kvenna. Topplið Keflavíkur heldur í Hafnarfjörð og mætir þar Haukum. Með sigri gulltryggir Keflavík sér deildarmeistaratitilinn. Haukar eru í 5. sæti með 24 stig, tveimur stigum á eftir KR og þurfa bráðnauðsynlega á sigri að halda í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.
Leikir kvöldsins í IEX-deild kvenna:
 
Haukar-Keflavík
Njarðvík-Snæfell
Hamar-Fjölnir
 
Eins og fyrr greinir gulltryggir Keflavík sér deildarmeistaratitilinn með sigri í kvöld en Haukasigur jafnar KR að stigum í 4. sæti deildarinnar. Njarðvík getur tæknilega enn orðið deildarmeistari en þær þurfa þá að vinna rest og byrja á Snæfell í kvöld og treysta því að Keflvíkingar tapi rest, langsótt.
 
í Hveragerði má búast við harðri baráttu þegar Hamar fær Fjölni í heimsókn en þessi tvö lið berjast nú hart fyrir tilverurétti sínum í deildinni. Hamar er á botninum með 12 stig en Fjölnir í 7. sæti með 14 stig. Hamar hefur unnið tvo af þremur leikjum liðanna svo ef Fjölnir vinnur í kvöld þurfa þær að vinna með 21 stigs mun til að ná innbyrðisviðureigninni milli liðanna og tryggja þannig að ef liðin endi jöfn að stigum að þá falli Hamar. Með sigri Hamars í kvöld verða bæði lið með 14 stig í deildinni og Fjölnir fer þá á botninn þar sem Hamar verður komið með 3-1 stöðu milli liðanna.
 
Fyrstu þrír leikir liðanna í deildinni:
 
Hamar 87-69 Fjölnir (18 stig Hamar) – Hamar 1 sigur
Fjölnir 88-85 Hamar (15 stig Hamar) – Fjölnir 1 sigur
Fjölnir 76-81 Hamar ( 20 stig Hamar) – Hamar 2 sigrar
 
Samantha Murphy verður með Hamri í kvöld en hún missti af síðasta leik liðsins þar sem hún hélt erlendis en það ferðalag var liður í umsókn hennar um framhaldsnám. Murphy er s.s. komin aftur í raðir Hamarskvenna og mun vafalítið láta vel til sín taka enda lykilleikmaður liðsins.
 
 
Mynd/ Samantha Murphy snýr aftur í lið Hamars í kvöld.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -