Páll Orri Pálsson lét ekki sitt eftir liggja á Nettó mótinu í Reykjanesbæ og tók þar keppendur tali en þetta stærsta körfuboltamót landsins setur jafnan mikinn svip á lífið í Reykjanesbæ. Víkurfréttir hafa í gegnum árin fylgst vel með Nettómótinu og árið í ár var þar engin undantekning.
Ungur og bráðefnilegur fréttamaður, Páll Orri Pálsson, hefur nú birt afrakstur sinn frá helginni á heimasíðu Víkurfrétta, www.vf.is en myndbandið eftir kappann má nálgast hér.
Heimatökin eru hæg að þessu sinni en Páll Orri er einmitt sonur eiganda og ritstjóra Víkurfrétta, Páls Ketilssonar.
www.vf.is



