Síðustu daga höfum við leitast eftir því hjá lesendum að finna hverjir væru með bestu beinu netútsendingarnar frá körfuboltanum. Þau leiðu mistök urðu að gleyma að setja inn tvo aðila í könnunina, KFÍ TV og Þór Akureyri TV. Reyndar komu þessir valkostir inn eftir að glöggir lesendur höfðu bent okkur á þennan ágalla könnunarinnar.
Spurt var: Hver er með bestu beinu netútsendingarnar?
KFÍ TV hafði 27% atkvæða en alls kusu 519 í könnuninni. Í 2. sæti með 22% atkvæða var Sport TV og í 3. sæti kom Tindastóll TV með 18%.
Nú er komin inn ný könnun þar sem við spyrjum fólk hvaða lið það telji að fari með KFÍ upp í úrvalsdeild á næstu leiktíð.



