Söfnunarátakið mottumars hjá Krabbameinsfélaginu er nú í fullum gangi. Átakinu hefur borist liðsstyrkur yfir Atlantshafið en landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í þýska Pro A liðinu Mitteldeutcher BC hafa skráð sig til keppni.
Hægt er að sjá síðu þeirra MBC-manna í mottumars með því að smella hér
Þá máttu Hörður og MBC þola tap í Þýskalandi um helgina þegar liðið heimsótti Dusseldorf á útivöll.
Gloria Giants Dusseldorf 85-77 MBC
Hörður Axel var stigahæstur í liði MBC með 10 stig, 7 fráköst og tvær stoðsendingar. Næsti leikur liðsins er 10. mars á heimavelli gegn VfL Kirchheim Knights en þeir eru í 3. sæti deildarinnar og því von á miklum slag.



