Njarðvík og Snæfell mættust nú í kvöld í Iceland Express deildinni og rétt eins og úrslitaleikurinn um bikarinn þá voru það Njarðvíkurstúlkur sem fóru með sigur af hólmi. 97:92 var lokastaða leiksins og má svo sem segja að sigurinn hafi verið sanngjarn. Njarðvík léku án Shanea Baker-Brice sem er meidd á hné.
Eitthvað virtist vera dauft yfir gestunum þetta kvöldið og í raun ótrúlegt að þær hafi ekki nýtt sér gullið tækifæri að taka sigur í Njarðvík þar sem þær voru án síns besta leikmanns. Hugsanlega að það hafi verið meinið og að þær hafi haldið að eftirleikurinn yrði auðveldur gegn Njarðvík án Baker-Brice. En það er hinsvegar annar bandarískur leikmaður í röðum Njarðvíkur og hún fór á kostum í leiknum. Lele Hardy setti upp smá sýningu þegar hún skoraði 48 stig og 21 frákast.
Njarðvíkurstúlkur voru með leikinn í hendi sér nánast megnið af leiknum en undir lokinn voru gestirnir úr Hólminum ekki langt frá því að stela sigri. Þeim til hróss þá gáfust þær aldrei upp og léku fast allt fram á síðustu sekúndu leiksins. Þær höfðu minnkað muninn niður í 3 stig þegar Njarðvík hóf sína síðustu sókn í leiknum. Löng sókn endaði með því að Sara Margeirsdóttir nelgdi síðasta naglann í kistulokið hjá Snæfell.
Þetta er fyrsti leikurinn á milli liðanna síðan þau mættust í úrslitaleik bikarsins. Mikið hefur hinsvegar gengið á síðan þá. Alda Leif Jónsdóttir var t.a.m ekki að spila á eðlilegum hraða, Hildur missteig sig illa á ökkla og hjá Njarðvík sem fyrr segir vantaði þeirra besta mann í vetur Shanea Baker-Brice. Njarðvíkurliðið er hinsvegar öruggt með annað sætið í deildinni og gæti tölfræðilega náð því fyrsta eftir úrslit kvöldsins. Snæfell standa ágætlega að vígi með sæti í úrslitakeppninni en fast á hæla þeirra koma KR og Haukar og því næstu leikir í deildinni verða slagsmál um sætisskipan þar.
mynd/texti: [email protected]



