HomeFréttirLeikir dagsins: Rimman um Reykjanesbæ

Leikir dagsins: Rimman um Reykjanesbæ

Í kvöld hefst 19. umferðin í Iceland Express deild karla með þremur leikjum sem allir hefjast kl. 19:15. Erikifjendurnir Njarðvík og Keflavík mætast í Ljónagryfjunni í rimmunni um Reykjanesbæ, Haukar fá botnlið Vals í heimsókn og KR tekur á móti Tindastól.
Leikir kvöldsins:
 
KR-Tindastóll
KR í 5. sæti deildarinnar með 22 stig en Tindastóll í 7. sæti og geta með sigri komist upp fyrir Snæfell í 6. sæti deildarinnar en Hólmarar leika annað kvöld.
 
Haukar-Valur
Valsmenn eru fallnir í 1. deild en Haukar eiga enn möguleika á því að bjarga sér frá falli með 8 stig í 11. sæti deildarinnar, 6 stigum á eftir Fjölni og ÍR.
 
Njarðvík-Keflavík
Keflvíkingar eru í 4. sæti deildarinnar með 24 stig en Njarðvík hefur 16 stig í 8. sæti deildarinnar. Njarðvíkingar bjóða stuðningsmönnum sínum í Grænu ljónunum upp á pizzahlaðborð fyrir leik og einnig munu þjálfarar liðsins fara yfir leikinn og svara spurningum þeirra.
 
Staðan í deildinni
Nr. Lið U/T Stig
1. Grindavík 17/1 34
2. Stjarnan 12/6 24
3. Þór Þorlákshöfn 12/6 24
4. Keflavík 12/6 24
5. KR 11/7 22
6. Snæfell 9/9 18
7. Tindastóll 9/9 18
8. Njarðvík 8/10 16
9. ÍR 7/11 14
10. Fjölnir 7/11 14
11. Haukar 4/14 8
12. Valur 0/18 0
 
  
Fréttir
- Auglýsing -