"Bara vörnin, við höfum lent í þessu tvisvar þrisvar í vetur, við náum ekki svona continuing stoppum. Við náum kannski einu góðu stoppi en við fáum alltaf körfu aftur. VIð náum ekki tveim, þremur stoppum til þess að taka af skarið, einhverri stemmingu eða eitthvað. Við erum svona næstum því líklegir í fyrri hálfleik, smá í þriðja svo missum við þá bara of langt".
Þessi nýting getur varla talist vænleg til árangurs, eru menn að taka röng skot eða hvað er það sem fer úrskeiðis?
"Nei það er alveg satt hjá þér, Það er mismunandi. Ég er að taka réttu skotin en hitti bara ekki neitt. Þarf bara að breyta því. VIð þurfum bara að finna taktinn okkar, við erum ekki í takt".
Það býr meira í þessu liði en þið sýnið hérna í kvöld ekki satt?
"Já það segir sig sjálft, við fórum erfiðu leiðina í bikarkeppninni og í úrslitaleikinn þar. VIð höfum sýnt það að það býr hellingur í okkur en við þurfum bara að sýna það".
[email protected]
Mynd : [email protected]



