KR sýndi það í leiknum í kvöld að þeir hafa breyddina til að spila af fullum krafti heilan leik án þess að það sé á kostnað gæða körfuboltans. Það spiluðu allir leikmenn liðsins meira en 6 mínútur og þeir gátu á tímabili í þriðja leikhluta hvílt leikmenn sem höfðu samanlagt skorað 55 af 69 stigum KR á þeim tímapunkti. Þær mínútur spiluðu þeir Jón Orri Kristjánsson, Martin Hermannsson, Hreggviður Magnússon, Emil Þór Jóhannsson og Björn Kristjánsson.
Það lá því beint við að spyrja Hrafn Kristjánsson, þjálfara KR, um hópinn.
"Stundum reynir þetta á einhverjar taugar ég veit það ekki en ég hef ekki náð að gera þetta nóg og þarf að gera þetta meira áður en úrslitakeppnin byrjar. Það veit enginn hvað gerist í meiðslum eða öðru skakkaföllum þegar allt er undir og þá verða þessir strákar að vera búnir að fá einhvern nasaþef af þessu"
Ertu þá að hvíla eða dreifa álaginu?
"Nei, við hugsum bara um að vinna þessa fjóra leiki, það er algjör útgangspunktur. Við erum komnir í úrslitakeppnis fíling. Við erum bara að byrja úrslitakeppnina fjórum leikjum fyrr. Ég og Bárður erum komnir í jakkafötin og fólk er farið að leggja aðeins meira í þetta, það er greinilegt".
KR er eftir leiki kvöldsins í öðru sæti deildarinnar með 24 stig, jafn mikið og Stjarnan og Þór Þorlákshöfn sem eiga bæði leik til góða. Þeir eru því í bullandi baráttu um heimavallarétt i úrslitakeppninni.
"Já algjörlega, og við teljum okkur ennþá vera í báráttu um annað sætið en til þess að það gerist þá þurfa önnur lið að misstíga sig. Við ætlum ekki að misstíga okkur, við ætlum að klára okkar prógram".
[email protected]
mynd: [email protected]