Travis Holmes leiddi Njarðvíkinga til sigurs gegn Keflavík í kvöld í rafmögnuðum slag. Holmes setti 41 stig, tók 12 fráköst og gaf 6 stoðsendingar í 95-93 sigri. Karfan TV ræddi við Holmes eftir leik og hann viðurkenndi að kannski gerði hann sér ekki alveg fyllilega grein fyrir því hvað þessar rimmur erkifjendanna í Reykjanesbæ þýddu fyrir bæjarbúa sem alist hafa upp við þessa kyngimögnuðu slagi.



