HomeFréttirÖruggur Haukasigur í Schenker-höllinni í gær

Öruggur Haukasigur í Schenker-höllinni í gær

 Valsmenn eru enn á án sigurs í IE-deildinni en vonir þeirra til að knýgja fram sinn fyrsta sigur fór út um þúfur í seinni hálfleik þegar að Haukar og Valur mættust í gær. Leikurinn verður seint sagt skemmtilegur og var í raun eins og allir biðu eftir að leikurinn myndi klárast.
 Haukar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en Valsmenn voru þó aldrei langt undan. Haukar náðu fínni byrjun og komst í 20-10 en Valsmenn minnkuðu muninn aftur og héngu inn í leiknum. Munurinn á liðunum var sjaldan meiri en sex stig þangað til að Haukar komu með smá áhlaup og leiddu í hálfleik með 49-32.

Valur sá aldrei til sólar í seinni hálfleik en Haukar juku þá muninn jafnt og þétt. Munurinn varð mestur 36 stig og var það undir lok leiks. Minni spámenn komu inn af bekknum snemma í fjórða leikhluta og í þeirri baráttu voru Valsmenn sterkari. Benedikt Blöndal og Kristinn Ólafsson sem voru einu ljósu punktarnir í leik Valsmanna en þessir ungu pjakkar áttu flottan leik.

Haukar unnu öruggan 97-74 sigur og minnkuðu muninn á Fjölni og ÍR um sæti í efstu deild en Fjölnir og ÍR spila í kvöld. ÍR heimsækir Stjörnuna og Fjölnir mætir Snæfelli í Hólminum.

 
Stigahæstur í liði Hauka var Chavis Holmes með 27 stig, 4 fráköst og 6 stoðsendingar. Christopher Smith gerði 22 stig, tók 9 fráköst og varði 5 skot og Emil Barja gerði 16 stig, var með 8 fráköst og 8 stoðsendingar.
 
Hjá Val var Marvin Jackson með 18 stig og 11 fráköst. Kristinn Ólafsson gerði 17 stig og tók 7 fráköst og Benedikt Blöndal var með 13 stig.

Mynd: Helgi Björn og félagar í Haukum áttu ekki í miklum vandræðum með lið Vals[email protected]

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -