HomeFréttirÍR hafðu betur í spennutrylli í Garðabænum

ÍR hafðu betur í spennutrylli í Garðabænum

ÍR sendi skýr skilaboð í kvöld með sterkum útisigri á Stjörnunni í kvöld og eiga því ennþá fræðilega möguleika á sæti í úrslitakeppninni.  ÍR byrjaði leikinn af krafti og með Robert Jarvis í broddi fylkingingar leiddu þeir leikinn lengst af.  Stjarnan kom til nokkrum sinnum til baka en tókst aldrei að taka frumkvæðið í leiknum.  Fjórði leikhlutinn var vægast sagt svakalegur en liðin skoruðu samanlagt 71 stig í leikhlutanum og þegar flestir héldu að sigurinn væri kominn í hús fyrir ÍR kom Stjarnan til baka og tókst að gera leikinn æsispennandi. ÍR hélt þó haus og voru ískaldir á vítalínunni sem tryggði þeim tvö mikilvæg stig í báráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Stjarnan situr því eftir með sárt ennið og hefur misst annað sætið í hendur Þórs frá Þorlákshöfn sem vann Grindavík í kvöld.
Stigahæsti maður vallarins var Robert Jarvis sem átti stórleik fyrir ÍR með 36 stig og þar af 7 af 8 þristum ofaní.  Næstu menn voru Rodney Alexander með 25 stig og 11 fráköst og Nemanja Sovic með 13 stig.  Í liði Stjörnunnar var Renato Lindmets besti maður liðsins og sá sem dró vagninn á köflum, sérstaklega í fyrri hálfleik með 27 stig og 10 fráköst.  Næstu menn voru Keith Cothran með 20 stig og Justin Shouse með 17 stig og 11 stoðsendingar.  

 

ÍR tók af skarið á fyrstu mínútum leiksins og komust í 0-7 áður en Renato Lindmets náði að svara fyrir Stjörnuna.  ÍR komst í 2-10 áður en Stjarnan datt í gang og skoraði næstu 7 stig leiksins.  Renato fór þar á kostum og skoraði 9 af fyrstu 11 stigum Stjörnunnar, 11-13.  Liðin skiptust á stigum næstu mínúturnar en ÍR hafði þó ávalt frumkvæðið.  Þegar þrjár mínútur voru eftir tók Gunnar Sverrisson, þjálfari ÍR, leikhlé og tókst þeim að klára lokamínútur leikhlutans nokkuð vel.  Þegar fyrsta leikhluta var lokið höfðu gestirnir 4 stiga forskot, 18-22.  

 

Stjarnan mætti hins vegar vel stemmd til leiks í annan leikhluta og skoraði fyrstu 7 stig leikhlutans, 25-22, áður en Eiríkur Önundarson svaraði fyrir ÍR.  Stjarnan átti góðan kafla og náði mest 5 stiga forskoti, 32-27, en ÍR minnkaði muninn hratt niður og þegar ÍR tók leikhlé stuttu seinna höfðu þeir náð að jafan 34-34.  Þá varð algjör kaflaskipti í leiknum þegar dómarar leiksins tóku hreinlega völdin.  Dæmd var óíþróttamannsleg villa á Jovan Zdravevski fyrir meint olnbogaskot.  Við það reiddust leikmenn Stjörnunnar og Renato Lindmets og Justin Shouse fengu báðir dæmda á sig tæknivillu á örstuttum kafla.  Robert Jarvis fékk því að taka fleiri vítaskot en undirritaður hafði tölu á og áður en yfir lauk höfðu þeir náð 10 stiga forskoti, 34-44.  Stjarnan lét þetta þó ekki á sig fá og vann sig hægt og rólega aftur inn í leikinn.  Munurinn á liðunum var kominn niður í 5 stig þegar flautað var til hálfleiks, 43-48.  Justin Shouse og Fannar Helgason voru þá baðir komnir með 3 villur.

 

Stigahæstur í liði ÍR í hálfleik var Robert Jarvis með 20 stig en næstir voru Rodney Alexander með 14 stig og 6 fráköst og  Nemanja Sovic með 5 stig.  Í liði Stjörnunnar var Renato Lindmets stigahæstur með 18 stig en næstir voru Jovan Zdravevski með 11 stig og Keith Cothran með 5 stig.  

 

ÍR spilaði fanta varnarleik í þriðja leikhluta og hafði því meira að segja efni á því að fara nokkrum sinnum illa með góð skot.  Þeir juku við forskotið hægt og rólega og þegar þriðji leikhluti var hálfnaður höfðu þeir 12 stiga forskot, 49-61.  Þeir voru því að vinna þriðja leikhluta 6-13.  Leikurinn breyttist lítið næstu mínútur og liðin skiptust á að skora.  ÍR hafði þetta rúmlega 10 stiga forskot sem þeir gáfu hvergi eftir og voru því 13 stigum yfir þegar einn leikhluti var eftir, 58-71. 

 

Stjarnan vissi hvað var undir í fjórða leikhluta og mættu ákveðnir til leiks.  Þeir skoruðu fyrstu 5 stig leikhlutans áður en Gunnar Sverrisson tók leikhlé fyrir ÍR, 63-71 og rúmlega tvær mínútur liðnar af leikhlutanum. Justin Shouse fékk sína fjórðu villu stuttu seinna og hlutirnir virtust ekki vera að falla með heimamönnum.  Keith Cothran gerði nokkrar heiðarlegar tilraunir til þess að minnka muninn fyrir Stjörnuna en ÍR virtist alltaf hafa svar.  Þegar leikhlutinn var hálfnaður munaði 8 stigum á liðunum, 72-80.  Stjörnunni tókst aldrei að minnka þennan mun nægilega mikið til þess að úr yrði leikur.  Robert Jarvis sá til þess með því að setja 2 þrista með stuttu millibili og munurinn á liðunum var kominn upp í 13 stig þegar rúmlega 2 mínútur voru eftir leiknum, 77-90.  Renato Lindmets fékk þá sína fimmtu villu og varð því að setjast á bekkinn.  Stjarnan tók þá á það ráð að press gestina hátt á völlinn í þeirri von að minnka muninn.  Ótrúlegt en satt þá tókst ÍR að setja tvo þrista á stuttum kafla og þegar ein mínúta og 14 sekúndur voru eftir höfðu þeir minnkað muninn niður í 4 stig, 87-91 og þá vöknuðu áhorfendur til lífsins.  Stjarnan ætlaði augljóslega ekki að gefa tommu eftir og upphófust svakalegar lokasekúndur.  Stjarnan þjarmaði að ÍR, braut á þeim við hvert tækifæri og sendi þá á línuna.  Eiríkur Önundarson og Nemanja Sovic voru þar svell kaldir og nýttu öll vítin sem þeir fengu og komu þannig í veg fyrir að Stjarnan næði að stela sigrinum.  ÍR vann því að lokum 98-102 eftir ótrúlegan lokakafla og 40 stiga fjórðung hjá Stjörnunni.  

 

Umfjöllun og mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -