Sigurjón Lárusson fékk viðurkenningu frá Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar fyrir að spila sinn 200. leik í meistaraflokki fyrir liðið. Sigurjón hefur síðastliðin ár spilað með ÍBV en kom aftur til liðsins fyrir þetta tímabil. Þar áður fylgdi hann liðinu í gegnum súrt og sætt og var meðal annars í liðinu þegar það tryggði sér síðast sæti í úrvalsdeild. Sigurjón þekkir því vel til í Stjörnunni og á stóran þátt í þeirri velgengni sem liðið býr að í dag.
"Vá, þetta er búinn að vera svo langur tími. Ég er náttúrulega svo nýkominn aftur í bæinn, var að spila með ÍBV síðastliðin þrjú ár. Ég vissi ekki af þessu fyrir leikinn, mér var bara tilkynnt þetta núna áðan. Skemmtilegt, kom skemmtilega á óvart. Maður er náttúrulega kominn á þrítugsaldurinn"
Hvað myndiru segja að standi uppúr á þessum árum sem þú hefur spilað með Stjörnunni?
"Já ætli það hafi ekki verið þegar við komumst síðast upp í úrvalsdeildina, það var hápunkturinn. Það var eiginlega síðasta tímabilið sem ég tók með Stjörnunni. Svo tók ég þarna nokkra leiki í úrvalsdeildinni áður en ég flutti til eyja. Þetta er bara búið að vera yndislegt. Gaman að fylgja klúbbnum frá byrjun og gaman að sjá hvar við erum komnir í dag því þegar ég byrjaði hérna þá vorum við að stofna klúbbinn. Bjössi Leó setti hann á fætur . Það er gaman að hafa fylgt klúbbnum alla leið og sjá hvar hann er staddur í dag".
[email protected]