Skagamenn eru komnir í úrslitakeppni 1. deildar og mæta þar Hamri í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Umtalsverðu lífi hefur verið blásið í starfið á Akranesi með tilkomu spilandi þjálfarans Terrence Watson sem ku vera drengur góður að sögn Sigurðar Elvars Þórólfssonar, liðsstjóra ÍA. Skagamenn mættu Ármenningum í lokaumferðinni í gærkvöldi og rúlluðu þar yfir botnliðið 80-126 í Kennaraháskólanum. Karfan.is ræddi við Sigurð Elvar sem sagði að undirbúningstímabili Skagamanna hefði lokið í gærkvöldi!
,,Tímabilið fór rólega af stað, Watson kom ekki fyrr en um tíu dögum fyrir fyrsta leik og ég viðurkenni það að undirbúningstímabilið hjá ÍA var kannski tíu dagar," sagði Elvar en Watson er 24 ára leikmaður og þreytir nú sína frumraun sem þjálfari.
,,Hann kemur úr hörku deild í háskólaboltanum og hefur staðið sig eins og hetja í þessu verkefni hjá okkur. Watson er leikmaður sem gæti skorað 50 stig í leik ef hann vildi en hann er liðsmaður, flottur íþróttamaður og góður strákur," sagði Elvar og finnur fyrir auknum krafti í starfinu á Skaganum.
,,Ég kom inn í þetta á seinni stigum, í nóvember eða desember, en karfan á Skaganum hefur verið í lægð. Það er kominn meiri kraftur í starfið og þá eru meðtaldir yngri flokkar. Í stjórnun félagsins er einnig að finna nýliða en þeir hafa staðið sig eins og hetjur. Hér var byrjað á núllpunkti og þegar ég kom inn þekkti ég bara Dag Þórisson í þessum hóp."
Dagur Þórisson hefur leikið fleiri en 300 leiki fyrir ÍA og er því ekki síðri öldungur en Marel Örn Guðlaugsson, leikjahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar. ,,Dagur er eldri en sólin," sagði Elvar spaugsamur. ,,Í gærkvöldi kom hann ofan af Skaga til Reykjavíkur með strætó, enda frítt í strætó fyrir menn á hans aldri." Stutt í gamanið hjá Elvari en við gerðumst aðeins alvarlegri þegar umræðan fór að nálgast úrslitakeppnina.
,,Það er ekkert voðalega mikið af ungum strákum í liðinu núna, flestir eru á aldrinum 26 til 28 ára og þeir hafa ekki verið neinar stórstjörnur. Hér er samt að finna leifar af vinnu Brynjars Karls Sigurðssonar í leikmönnum eins og Herði Nikulássyni, Birkir Guðjónsson hefur komið sterkur inn sem og Áskell Jónsson," sagði Elvar en Skagamenn telfdu fram nýjum leikmanni í gærkvöldi sem er bakvörður og heitir Lorenzo Lee McClelland.
,,Undirbúningstímabilinu lauk í gærkvöldi," sagði Elvar en aðspurður hvort ekki væri eðlilegast að fólk myndi spá þeim skjótum dauða í úrslitakeppninni sagði hann: ,,Ég vona að fólk haldi að okkur verði sópað út."
ÍA mætir Hamri í fyrstu umferðinni og því fer fyrsti undanúrslitaleikur liðanna fram í Hveragerði. Vinna þarf tvo leiki og því mætast liðin í öðrum leiknum á Jaðarsbökkum þar sem áhorfendum er þröngur stakkur sniðinn. ,,Það er ekki hægt að spila körfubolta á Vesturgötunni en það hús gæti mögulega rúmað 1000 manns," sagði Elvar en ekki er búið að merkja körfuboltavöllinn í því íþróttahúsi og því hafa Skagamenn leikið að Jaðarsbökkum þar sem um 100 áhorfendur komast að með þolanlegu móti, bagalegt þegar liðið er komið í úrslitakeppni.



