HomeFréttirKeflavík Íslandsmeistari 8.fl kvenna 2012

Keflavík Íslandsmeistari 8.fl kvenna 2012

 Það kom hugsanlega fæstum á óvart að það voru Keflavík sem lönduðu Íslandsmeistaratitlinum í 8. flokki kvenna í dag í ljósi þess að í úrslitaleiknum spiluðu A og B lið Keflavíkur til úrslita. Svo fór að 35:15 A-liðinu í vil.  Það voru þær Elva Falsdóttir og Thelma Dís Ágústsdóttir fyrirliðar A-liðsins sem tóku við bikarnum úr höndum Önnu Maríu Sveinsdóttir. 
 Keflavík heldur því áfram framleiðslu sinni á frambærilegum kvennaflokkum og ekki sér fyrir endan á þeirri þróun.  Karfan.is óskar þessum fyrstu Íslandsmeisturum ársins til hamingju með daginn. 
 
B lið þeirra Keflvíkinga með silfrið.
 
Fyrirliðar A-liðsins Elfa Falsdóttir og Thelma Dís Ágústsdóttir
 
Fréttir
- Auglýsing -