Manresa lá á útivelli í gær þegar liðið mætti Blancos de Rueda í ACB deildinni á Spáni en Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza unnu góðan sigur í dag þegar Alicante kom í heimsókn. Með sigrinum er Zaragoza komið í 5. sæti ACB deildarinnar en Manresa er í 11. sæti.
CAI Zaragoza 65-49 Alicante
Jón Arnór Stefánsson gerði tvö stig í leiknum á 21. mínútu, þristarnir vildu ekki niður hjá Jóni í leiknum. Kappinn setti þrjá í loftið sem rötuðu ekki rétta leið en hann var einnig með tvö fráköst og tvær stoðsendingar.
Blancos de Rueda 79-70 Manresa
Haukur Helgi Pálsson kom lítið við sögu í leiknum, lék í eina mínútu og náði ekki að skora. Stigahæstur hjá Manresa var Micha Downs með 13 stig.



