Röndóttir KR-ingar urðu Íslandsmeistarar í 8. flokki drengja um helgina en lokamótið í þessum árgangi fór fram í Hagaskóla í Reykjavík. Liðið vann alla leiki sína á tímabilinu, glæsilegur árangur það.
Á myndinni, efriröð frá vinstri, Yngvi Páll Gunnlaugsson þjálfari,
Karvel Ágúst Schram, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, Eyjólfur Ásberg
Halldórsson, Sverrir Arnórsson, Sveinn Sigþórsson, Ingvi Karl Jónsson,
neðri röð Veigar Áki Hlynsson, Ingimar Baldursson, Arnór Hermannsson,
Kristján Ari Tómasson og Bjarni Ármann Atlason
KR-ingar kórónuðu góðan vetur með sigri í síðasta fjölliðamóti vetrarins og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn árið 2012, þann fjórða í röð hjá 1998-árganginum. Ásamt KR áttu lið Njarðvíkur, Keflavíkur, Grindavíkur og Breiðabliks einnig sína fulltrúa á mótinu en keppt var í DHL-höllinni og Hagaskóla.
KR-ingar unnu Grindvíkinga í fyrsta leik 56-36 í leik sem fyrirfram mátti búast við jafnari, en Grindvíkingar áttu fá svör við ákveðnum KR-ingum og því var sigurinn nokkuð fyrirhafnarlítill.
Seinni leikur KR á föstudeginum var gegn Njarðvík, en þessi tvö lið hafa verið helstu keppinautar um Íslandsmeistaratitilinn undanfarin ár. KR leiddi eftir fyrsta leikhluta 11-9 og 18-14 í hálfleik. Njarðvík náðu að jafna 18-18 í upphafi seinni hálfleiks en eftir það sigu KR-ingar frammúr og leiddu 33-22 fyrir lokaleikhlutann. KR-strákar spiluðu 4. leikhluta mjög skynsamlega, hleyptu gestunum aldrei inn í leikinn og uppskáru 12 stiga sigur fyrir vikið, 44-32.
Eftir fyrri daginn áttu KR, Keflavík og Njarðvík enn möguleika á titlinum en Breiðablik og Grindavík voru án sigurs. Breiðablik tapaði fyrir Keflavík og Njarðvík en Grindavík beið lægri hlut fyrir Keflavík og KR eins og áður hefur komið fram.
Seinni dagurinn hófst með sigri Breiðabliks á Grindavík en síðan mættust Keflavík og Njarðvík í bráðfjörugum leik. Keflavík náði ágætis forskoti í fyrri hálfleik en Njarðvík beit heldur betur frá sér í seinni hálfleik og höfðu ágætis tök á leiknum fram undir lok leiksins, en þá gerðu Keflvíkingar lokaáhlaup og voru nálægt því að koma leiknum í framlengingu, svo fór að Njarðvík vann 36-34.
KR vann Breiðablik 51-30 í sínum næstsíðasta leik en urðu fyrir áfalli þegar annar miðherja liðsins meiddist í öðrum leikhluta og þurfti að yfirgefa völlinn. Munurinn á liðunum var þó það mikill að ekki kom að sök og lönduðu eins og áður sagði öruggum sigri og komu sér þar með í lykilstöðu um Íslandsmeistaratitilinn.
Síðasti leikur mótsins var leikur KR og Keflavíkur. Fyrir leikinn var ljóst að það nægði KR að vinna sinn leik, Keflavík varð að vinna KR með minnst 7 stiga mun til að verða Íslandsmeistari og Njarðvík varð að treysta á sigur KR til að landa öðru sætinu.
Keflavík hóf leikinn gegn KR af miklum krafti og leiddu 9-3 eftir fyrsta leikhluta og mikið afrek að halda KR í þremur stigum. Í öðrum leikhluta sýndu svo meistararnir úr hverju þeir eru gerðir og varð alger viðsnúningur, Þórir Þorbjarnarson setti 10 af 12 stigum KR í leikhlutanum, þar af tvær þriggja stiga körfur lengst utan af velli, vörnin var frábær hjá KR og voru þeir því yfir 15-11 í hálfleik. Sókn KR tók heldur betur kipp í seinni hálfleik, Eyjólfur Halldórsson og Arnór Hermannsson léku vörn Keflavíkur oft grátt og áttu sinn þátt í því að KR hafði 30-18 forystu fyrir síðasta leikhlutann og brött brekka framundan fyrir Keflavík að klífa. KR náði mest 16 stiga mun í seinni hálfleik og fjaraði leikurinn út síðustu mínúturnar, Keflavík minnkuðu muninn í 8 stig og var það munurinn þegar lokaflautann gall, KR Íslandsmeistari eftir 42-34 sigur á Keflavík.
KR kláraði veturinn með 100% sigurhlutfall, 16-0. Gott jafnvægi er í liðinu, strákar sem skila sínum hlutverkum með sóma, sinna sínum verkefnum bæði í vörn og sókn. Alls urðu 13 leikmenn Íslandsmeistarar með 1998 liðinu í vetur þ. e. Arnór Hermannsson, Ingimar Baldursson (fl), Þórir Þorbjarnarson, Eyjólfur Halldórsson, Karvel Schram, Sveinn Sigþórsson, Sverrir Arnórsson, Bjarni Ármann Atlason, Kristján Ari Tómasson, Ingvi Jónsson, Leifur Þorsteinsson, Andrés Hlynsson og Veigar Hlynsson.
Þjálfari KR er Yngvi Páll Gunnlaugsson
Ljósmynd/ Halldór G. Eyjólfsson



