HomeFréttirFSu lokaði tímabilinu með sigri fyrir norðan

FSu lokaði tímabilinu með sigri fyrir norðan

Þór tapaði gegn FSu á föstudagskvöld í lokaumferð 1. deildar karla í körfubolta í leik sem fram fór í íþróttahöllinni á Akureyri. Leikur Þórs og FSu var vægast sagt furðulegur leikur svo ekki sé nú fastara að orði kveðið.
Byrjunin lofaði þó góðu a.m.k. fyrir heimamenn því þeir byrjuðu leikinn með látum og náðu strax á upphafs mínutnum 10 stiga forystu og virtust ætla stinga gestina af. Þegar fyrsta leikhlutanum lauk höfðu heimamenn 10 stiga forystu og staðan þegar annar fjórðungur hófst 29-19. ??Þórsarar byrjuðu annan leikhlutann betur en gestirnir og náðu 13 stiga forystu en í stöðunni 41-28 tók þjálfarinn að skipta út leikmönnum og gefa fleirum tækifæri, þá fór að halla undan fæti. Leikur heimamanna riðlasti mjög og gestirnir gengu á lagið og minnkuðu muninn jafn og þétt og þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik munaði aðeins 6 stigum á liðunum. Staðan í hálfleik 46-40. Þórsliðið gerði sig sekt um að gera fjölmörg mistök í öðrum leikhluta sem gestirnir nýttu sér vel og unnu fjórðunginn með fjórum stigum.
 
??Í upphafi þriðja leikhlutans náðu Þórsarar að auka forystuna aftur upp í 9 stig en þá var eins og allur kraftur væri aftur úr liðinu og gestirnir gengu á lagið. Smán saman átu þeir þennan litla mun upp og unnu leikhlutann með 5 stigum og þegar fjórðungnum lauk munaði aðeins einu stígi á liðunum 56-55 og spennan hlaupin í leikinn sem fátt virtist benda til að yrði í upphafi leiks. ??Fjórði og síðasti leikhlutinn var hreint út sagt ótrúlegur hjá báðum liðum. Fljótlega skoruðu Þórsarar tveggja stiga körfu 58-55 og þá fór í hönd hreint út sagt ótrúlegur leikkafli, hjá báðum liðum. Leikmenn beggja liða voru á stundum eins og byrjendur í körfubolta og þeim voru mjög mislagðar hendur og ekkert gekk  upp.  T.d. komu gestirnir boltanum ekki ofan í körfuna fyrr en eftir að fimm mínútur og fimmtán sekúndur og þá var staðan 60-57. Leikmenn beggja liða nýttu vítin illa, misstu boltann á víxl og hittu illa og leikurinn varð í raun ein hringavitleysa.
 
En lokakafli leiksins var æsispennandi og gat sigurinn fallið hvoru megin sem var. Gestirnir reyndust sterkari og komust yfir í stöðunni 60-61. Þórsarar reyndu allt hvað þeir gátu til að jafna leikinn og stöðunni 66-69 og fjórar sekúndur eftir af leiknum lögðu Þórsarar upp í sókn og Eric Palm reyndi skot frá eigin vallarhelmingi og munaði ekki miklu að skot hann rataði rétta leið. En svo fór þó ekki og gestirnir fögnuðu þriggja stiga sigri og lokatölur leiksins því 66-69. ??Eins og segir í upphafi verður leikurinn seint skráður á spjöld sögunnar fyrir gæði. Bæði liðin spiluðu illa og það vita leikmenn beggja liða mæta vel. Skemmtanagildi leiksins var ekkert.
 
??Stig Þórs; Eric Palm 26, Stefán Karel Torfason 8, Sindri Davíðsson og Spencer Harris 7 stig hvor, Sigmundur Óli Eiríksson 5, Helgi Hrafn Halldórsson og Þorbergur Ólafsson 4 hvor, Guðmundur Ævar Oddsson 3 og Baldur Már Stefánsson 2.??Fsu: Steven Terrell Crawford 29, Orri Jónsson 14, Svavar Stefánsson 7, Þorkell Bjarnason og Sæmundur Valdimarsson 6 hvor, Eggert Sigurþór Guðlaugsson3 og þair Kjartan Atli Kjartansson og Sigurður Orri Hafþórsson 2 hvor.??
 
Þórsarar enduðu tímabilið á svipuðum nótum og þeir hófu það, með tapi. Liðið endaði í 7. sæti deildarinnar með 14 stig líkt og FSu.
 
 
Umfjöllun og myndir: Páll Jóhannesson – www.thorsport.is  
Fréttir
- Auglýsing -