HomeFréttirBryndís ekki meira með KR á tímabilinu

Bryndís ekki meira með KR á tímabilinu

Nú þykir það ljóst að framherjinn Bryndís Guðmundsdóttir leiki ekki meira með KR í Iceland Express deild kvenna þessa leiktíðina. Helga Einarsdóttir er einnig frá leik út tímabilið og nú bætist Bryndís í þann hóp vegna hnémeiðsla. Þetta staðfesti Finnur Freyr Stefánsson þjálfari KR við Karfan.is.
KR leikur risavaxinn leik við Hauka annað kvöld en liðin berjast nú hart um sæti í úrslitakeppninni. KR er eina lið deildarinnar sem teflir fram einum atvinnumanni í Ericu Prosser og mæta annað kvöld Haukum sem skelltu Keflavík í síðustu umferð.
 
Bryndís lék 21 leik með KR á tímabilinu og gerði í þeim 10,7 stig, tók 7,3 fráköst og gaf 2,9 stoðsendingar að meðaltali í leik svo það er ansi myndarlegt skarð höggvið til frambúðar þessa leiktíðina í hóp KR.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -