Ótrúlegustu hlutir eiga það til að gerast í bandaríkjunum og á laugardaginn síðastliðinn gerðist akkurat það þegar leikið var til úrslita í state championship í High School kvenna Oregon í bandaríkjunum. Til úrslita léku Springfield og Willamette High og leikurinn endaði 17-9. Þessar tölur eru ekki algengar í körfubolta og ástæðan fyrir þessum tölum er líklega ennþá sjaldgæfari. Annað liðið kaus að tefja leikinn eins mikið og þær gátu en það er ekki skotklukka í High School kvenna í bandaríkjunum.
Leikurinn þróaðist á einkennilegasta hátt þegar Williamette fékk boltan í upphafi leiks og hreinlega hélt bara á boltanum, gáfu ekki boltan og drippluðu ekki. Sagan breyttist ekki í öðrum leikhluta þegar þær héldu bókstaflega á boltanum í 9 mínútúr og 50 sekúndur þangað til þær ætluðu að skora einu stig leikhlutans en tókst ekki. Staðan í hálfleik var 4-0 fyrir Springfield sem hafði staðið allan annan leikhluta í svæðisvörn og biðu eftir því að andstæðingarnir gerðu í það minnsta tilraun til þess að skora.
Þjálfari Williamette, Paul Brothers, vildi meina að þær hefðu reynt að keppa við Springfield og það hafi ekki gengið þar sem Sprinfield væri einfaldlega alltof gott lið. " Ef við hefðum bara sett tvo eða þrjá af þessum þristum væri ég snillingur" sagði þjálfarinn við fréttamenn eftir leikinn.
Sjón er sögu ríkari og það er vægast sagt forvitnilega sjón að sjá þessa einkennilegu taktík í körfubolta leik. Hér má sjá frétt um leikinn ótrúlega.
[email protected]