HomeFréttirÚrslit: Enginn titill á loft í Keflavík

Úrslit: Enginn titill á loft í Keflavík

Í kvöld hófst 27. umferð Iceland Express deildar kvenna þar sem Keflavík og Snæfell áttust við í Toyota-höllinni. Hólmarar höfðu 59-61 sigur í miklum spennuslag og því varð ekkert úr því að Keflavík hampaði deildarmeistaratitlinum. Keflavík fær því eitt tæki færi í viðbót til að tryggja sér titilinn, annað hvort að Njarðvík tapi öðrum af tveimur síðustu leikjum sínum eða Keflavík vinni sigur í síðustu umferð gegn KR. Sigur Snæfells í kvöld þýðir að liðið hefur tryggt sæti sitt í úrslitakeppninni.
Hildur Sigurðardóttir gerði sigurstig Hólmara þegar 46 sekúndur voru til leiksloka og ekki var meira skorað eftir það og lokatölur því 59-61 Snæfell í vil. Snæfell vann því þrjár af fjórum deildarviðureignum sínum gegn Keflavík í vetur.
 
Hildur fór fyrir liði Snæfells í kvöld með 16 stig, 10 fráköst og 4 stoðsendingar. Hjá Keflavík var Pálína María Gunnlaugsdóttir atkvæðamest með 29 stig, 10 fráköst og 3 stoðsendingar en Pálína átti einnig lokaskot leiksins en það var þriggja stiga skot sem rataði ekki rétta leið.
 
Nánar síðar…
 
Mynd úr safni – Björn Ingvarsson: Hildur Sigurðardóttir átti sterkan leik með Snæfell í kvöld.
  
Fréttir
- Auglýsing -