Það voru Golden State Warriors og Milwaukee Bucks sem fyrst liða í NBA létu til skarar skríða á félagaskiptamarkaði NBA deildarinnar í nótt þegar Monta Ellis, Ekpe Udo og Kwame Brown héldu til liðs við Milwaukee Bucks í skiptum fyrir Ástralann Andrew Bogut og Stephen Jackson.
Bogut var valinn fyrstur í nýliðavalinu 2005 og Ellis er ein af helstu stigamaskínum deildarinnar svo um þungavigtarskipti var að ræða millum liðanna. Monta Ellis hafði verið vændur um að vilja komast við hlið Dwight Howard í Orlando og var Milwaukee örugglega ekki efst á listanum hjá kappa.
Mynd/ Monta Ellis klárar tímabilið með Milwaukee Bucks þar sem hann fer úr 13. sæti á vesturströndinni í 8. sæti á austurströndinni og líkurnar á því að Ellis leiki í úrslitakeppninni hafa því stóraukist með nokkrum pennastrikum.



