Bjarni Magnússon þjálfari Hauka og Tierny Jenkins voru eins og gefur að skilja sæl með sigur Hauka í kvöld gegn KR þegar Hafnfirðingar tryggðu sér síðasta plássið í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna. Sigur Hauka var sannfærandi þó leiðir liðanna hefðu ekki skilið fyrr en í síðari hálfleik eftir jafnar upphafsmínútur.



