Í kvöld fékkst það endanlega staðfest að Hamar leikur í 1. deild kvenna á næstu leiktíð. Valskonur höfðu öruggan sigur á botnliðinu og þrátt fyrir sigurinn er tímabilið ráðið hjá nýliðum Vals, þær halda sæti sínu í deildinni, ljúka keppni í 6. sæti og komast ekki í úrslitakeppnina. Hannes Birgir Hjálmarsson og Torfi Magnússon komu við að Hlíðarenda í kvöld.
1. fjórðungur
Leikurinn byrjar með látum og liðin nýta fyrstu sóknirnar en Valsliðið skorar á undan, staðan 7-7 eftir tvær mínútur. Hamar nær þá smá áhlaupi og skorar 6 stig á móti tveimur stigum Vals og nær 4 stig forskoti 9-13 þegar Katherine Graham brýtur á Lacey Simpson í þriggja stiga skoti, Lacey hittur úr tveimur skotum og María Ben skorar úr sniðskoti og jafnar 13-13. Samantha Murphy skorar fyrir Hamar en Kristrún Sigurjónsdóttir setur þrist og kemur Val yfir 16-15. Hamarskonur pressa stíft á Valsliðið en Valsliðið nær að leysa pressuna vel og skora nokkrar körfur og þegar Kristrún setur annan þrist tekur Lárus Jónsson þjálfari Hamars leikhlé egar 4:44 eru eftir af fjórðungnum og Valur með 7 stiga forystu 23-16. Hamarsliðið tapar boltanum strax í næstu sókn og Kristrún semllir enn einum þristi en Íris Ásgeissdóttir skorar fyrir Hamar. Lacey Simpson fær sína aðra villu fyrir brot á Katherine sem skorar úr báðum vítaskotunum og staðan 26-20. Fanney Lind Guðmundsdóttir setur þrist fyrir Hamar og minnkar muninn í 3 stig en María Ben svarar fyrir Val. Liðin reyna að keyra hraðann upp en eru svolítið mislagðar hendur nokkrir tapaðir boltar líta dagins ljós. María Björnsdóttir hittir þó úr hraðaupphlaupi og Fanney Lind hittir úr öðrum þristi þegar 20 sekúndur eru eftir. Brotið er á Unni Láru Ásgeirsdóttur í skoti og hún setur bæði vítin og Hamar hefur ekki tíma til að skora áður en leikhlutanum lýkur, staðan 30-27 fyrir Val.
Liðin virka nokkuð jöfn að getu og munurinn aldrei mikill, varnir liðanna eru ekki áberandi. Melissa Lechlitner spilaði einungis um 3 mínútur fyrir Val og er greinilegt að Valskonur sakna hennar en hún er ekki alveg búin að jafna sig á meiðslum sem hún varð fyrir í þar síðasta leik. Kristrún er stigahæst Valskvenna með 9 stig, María Ben og Lacey eru næstar með 8 stig. Hjá Hamri er Fanney Lind með 8 stig og Katherine Graham með 7.
2. fjórðungur
Lítið markvert gerist fyrstu mínúturnar, mikið um skot sem geiga þangað til Unnur Lára setur þrist fyrir Val og Melissa skorar sín fyrstu stig og kemur Val í 10 stiga forskot 39-29. Fanney Lind kemur aftur inn á og byrjar á að setja niður þrist en Unnur Lára svarar strax fyrir Val og Melissa skorar úr hraðaupphlaupi og Unnur bætir við annarri körfu og Valsliðið nær 13 stiga forskoti 45-32 þegar leikhlutinn er hálfnaður. Hamar tekur leikhlé og Kristrún setur strax þrist í kjölfarið og Unnur Lára skorar eftir glæsilega stoðsendingu frá Guðbjörgu Sverrisdóttur áður en Samantha Murphy og Katherine Graham skora fyrir Hamar en Valsliðið brunar fram og Lacey skorar auðvelda körfu, 16 stiga forskot Vals staðreynd þegar 3 mínútur lifa af fyrri hálfleik. Kristrún er langt frá því hætt og setur sinn fimmta þrist og eykur muninn enn. Valsliðið skorar nú úr hverri sókn en ekkert gegnur hjá Hamri, forystan orðin 21 stig þegar 40 sekúndur eru eftir 57-36 og þannig lýkur fyrri hálfleik.
Valsliðið var nánast einrátt á vellinum í öðrum leikhluta og vann hann 25-9! Hamarsliðið virtist ekki geta sett boltann ofan í körfuna á meðan Valsliðið lék á als oddi og nýttu leikmenn skot sín vel. Kristrún Sigurjónsdóttir er stigahæst Valskvenna með 15 stig (5 þristar!), en Unnur Lára Ásgeirsdóttir er þar næst með 11 stig og 7 fráköst, Lacey Simpson er með 10 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar og er búin að eiga góðan leik. Hjá Hamri er Fanney Lind Guðmundsdóttir með 13 stig, Katherine Graham með 9 stig og Samantha Murphy með 7 stig sem þykir ekki mikið á þeim bænum.
3. fjórðungur
Báðum liðum eru mislagðar hendur í upphafi seinni hálfleiks og það er ekki fyrr en María Ben setur annað af tveimur vítum þegar rúm mínúta er liðin sem fyrstu stig síðari hálfleiks líta dagsins ljós, Hamar tapar boltanum í næstu sókn og Guðbjörg Sverrisdóttir setur þrist og Kristrún bætir öðrum við og staðan skyndilega orðiin 61-36 fyrir Val. Katherine Graham hefur lítt orðið ágengt gegn Lacey og Signýju Hermannsdóttur í Valsvörninni en loks setti Samantha Murphy þrist fyrir Hamar og staðan 64-39 þegar 6 míútur eru eftir af fjórðungnum. Leikurinn er farinn að bera þess merki að Valsliðið er með unninn leik en liðin skiptast þó á körfum og þegar Melissa hefur sett 1 víti er staðan orðin 71-44 fyrir Val og tæpar 3 mínútur eftir af fjórðungnum. Unnur á frábæra stoðsendingu á Maríu Ben sem skorar auðveldlega og Álfhildur Þorsteinsdóttir skorar fyrir Hamar. Samantha Murphy skorar en veiðir Unni Láru í villu um leið og setur einnig vítið. Melissa brýtur á Samönthu í þriggja stiga skoti og hún setur öll vítin. Breglind Karen Ingvarsdóttir nær að gefa stórskemmtilega stoðsendingu á Unni Láru sem leggur boltann í körfuna og Hamar brunar á síðustu sekúndum leikhlutans upp völlinn en leikhlutanum lýkur áður en þær ná skoti. Stigahæstar hjá Val eru Kristrún með 20 stig og Unnur Lára með 15, þá er Lacey nálægt tvöfaldri þrennu með 10 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar. Samantha Murphy er stigahæst hjá Hamri með 18 stig, Fanney Lind með 13 og Katherine Graham með 12.
4. fjórðungur
Valsliðið er á undan að skora en Jenný Harðardóttir svarar með því að setja þrist fyrir Hamar og Signý setur sniðskot fyrir Val. Skorað er á víxl en Hamarsstúlkur þurfa enn að hafa meira fyrir hlutunum. Samantha skorar og Melissa svara með körfu og vítaskoti þannig að staðan er orðin 86-59 þegar 7 mínútur eru eftir af leiknum. Marín Laufey Davíðsdóttir skorar fyrir Hamar og minnkar muninn lítillega. Lárus þjálfari Hamars skiptir Katherine Graham útaf þegar Samantha fær tvö vítaskot (sem hún hittir úr) en Katherine hefur lítið sést í síðari hálfleik. Kristrún dripplar sig í gegnum Hamarsvörnina og setur tvö stig og Marín svarar fyrir Hamar, Kristrún setur tvö vítaskot og staðan orðin 90-67. Lacey tekur enn eitt frákastið og brotið er á henni í skoti í kjölfarið og hún setur annað vítið. Márín Laufey skorar fyrir Hamar og Gústi skiptir Lacey útaf þegar tæpar 2 mínútur eru eftir. Öruggur sigur Vals er í höfn þegar Unnur setur skemmtilega körfu um leið og hún dettur í gólfið og reynast það lokastig leiksins sem endar 95-67 fyrir Val.
Valur vann öruggan sigur í leiknum eftir að þær unnu annan leikhluta örugglega. Lacey Simpson átti enn einn afbragðs leikinn og skilaði fínum tölum 11 stig, 11 fráköst og 8 stoðsendingar en Kristrún Sigurjónsdóttir var stigahæst með 24 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar, Unnur Lára Ásgeirsdóttir átti auk þess flottan leik með 19 stig, 8 fráköst og 3 stoðsendingar. Hjá Hamri bar mest á Samönthu Murphy sérstaklega í seinni hálfleik en hún endaði með 24 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar, Fanney Lind Guðmundsdóttir skoraði 13 stig og Katherine Graham var með 12. stig, 3 fráköst og 4 stoðsendingar en átti erfitt uppdráttar gegn Lacey, Signýju og Maríu Ben.
Vodafone höllin að Hlíðarenda / Hannes Birgir Hjálmarsson



