Á föstudagskvöldið tóku heimamenn í ÍG á móti Hvergerðingum í síðasta leik heimamanna í 1.deildinni þetta tímabilið og var greinilegt að heimamenn ætluðu út með stæl!
Byrjunarliðin voru,
ÍG-Halli,Helgi,Bergvin,Morten og Eggert
Hamar-Lárus,Ragnar,Calvin,Louie og Svavar
Jackie Moon (Halli Jó), einvaldur ÍG, sýndi í byrjun að hann ætlaði að selja sig dýrt í þessum leik og fylgdu ÍG menn honum eins og kolbrjálaðir sjóarar sem hefðu ekki komið í land í marga mánuði.
Eftir fyrsta leikhluta var staðan 27-24 ÍG í vil. Þó leikurinn væri hnífjafn þá skörtuðu Hamarsmenn bandarískum leikmanni sem ÍG menn reyndu í hvívetna að stöðva en ekkert gekk. Hann skoraði 36 af 96 stigum Hamars manna í þessum leik.
í öðrum leikhluta hélt spennan áfram og var ekki að sjá að annað liðið væri fallið, bæði lið voru að hitta vel. Staðan var jöfn eftir þessa flottu leikhluta hjá báðum liðum. Í seinni hálfleik hélt stuðið áfram og hittu bæði lið þræl vel úr sínum skotum og var nokkuð augljóst að svona myndi þetta vera alveg fram að síðustu sekúndu! Hamarsmenn stóðu af sér heimamenn og kláruðu dæmið 92-96.
Stigahæstu menn hjá ÍG voru Halli með 26, Bergvin 23 og af bekknum kom einn með alveg ágætis framlag 20 stig og 13 fráköst, sjálfur Guðmundur Bragason.
Hjá Hamri var Calvin með 36 og næstur var Louie með 15.
,,Við ÍG menn erum mjög stoltir af okkar árangri í vetur og lítum svo á að þetta gerði okkur að betri leikmönnum en við vorum fyrir tímabilið, enda eitt af þremur liðunum sem spilaði bara á heimamönnum,hin voru Breiðablik og Ármann. Við unnum fjóra leiki af fyrstu 5 en unnum ekki leik eftir það, en í þessum fyrstu leikjum voru flest lið ekki búin að bæta við sig 2-3 erlendum leikmönnum," sagði Davíð Arthur Friðriksson einn leikmanna ÍG.
,,Önnur lið fyrir utan okkur, Breiðablik og Ármann finnst mér ekki vera á réttri braut, við eigum ekki séns í Þór Ak. með þessa þrjá útlendinga og hvað þá Hött með einn af betri atvinnumönnum á landinu, ekki heldur Skallagrím, KFÍ, Hamar, FSu og ÍA. Við komum samt alltaf til baka og veljum uppbyggingu," sagði Davíð að lokum.




