Njarðvík lagði Keflavík í stórslag nítjándu umferðar í Iceland Express deild karla og þar steig ungur en efnilegur leikmaður rækilega upp í liði þeirra Njarðvíkinga og sá til þess að bikarmeistararnir úr Keflavík myndu ekki stinga af á lokasprettinum. Karfan.is hefur valið Maciej Baginski sem Gatorade-leikmann nítjándu umferðar.
Maciej gerði 15 stig í liði Njarðvíkinga og þar leyndust þrír risavaxnir þristar á ögurstundum leiksins. Fleiri fengu atkvæði í þessari umferð, liðfélagi Maciej, hann Travis Holmes var á meðal þeirra, Benedikt Guðmundsson þjálfari Þórs úr Þorlákshöfn hlaut einnig atkvæði sem og bakvörðurinn Robert Jarvis hjá ÍR.




