,,Það er svolítill aumingjaskapur að hugsa svona, fjórir leikir eftir, við erum orðnir deildarmeistarar og halda að það sé eitthvað erfitt að gíra sig upp því það sé ekki að neinu að keppa, það er bara aumingjaskapur. Þetta er ekki raunin hjá okkur, menn koma tilbúnir en koma tilbúnir sem einstaklingar," sagði Páll Axel Vilbergsson fyrirliði Grindavíkur eftir tap toppliðsins gegn Snæfell í Röstinni í kvöld. Grindavík sá lítið til sólar í leiknum og söknuðu sárt leikstjórnandans Giordan Watson sem fékk hvíld sökum smávægilegra meiðsla.
,,Við náum bara ekki að vinna þetta saman sem liðsheild og það vantaði helling upp á þetta hjá okkur. Samskipti varnar og sóknar var ábótavant og þetta er bara eitthvað sem við þurfum að laga," sagði Páll en fann hann mikið fyrir því hversu viðkvæm staða leikstjórnanda er þegar Watson var í borgaralegum klæðum á bekknum?
,,Já vissulega enda erum við vanir því að spila með góðan leikstjórnanda en hann var ekki með í dag en við undirbjuggum okkur ekkert rosalega mikið fyrir það að leika án hans í kvöld þannig lagað. Við fengum pressu á okkur og lentum í vandræðum með að leysa hana og þegar við fengum á kjaftinn sem lið þá brugðumst við ekki við því sem lið heldur fóru allir út í sitt horn sem einstaklingar."
Verðið þið ekki að rétta ykkur af og koma af meiri þunga inn í úrslitakeppnina?
,,Jú jú, ef við lítum þannig á þetta. Ég held að við þurfum að taka sterkar til orða og tala um að Grindvíkingar þurfi að gyrða sig í brók! Við förum ekki svona inn í úrslitakeppnina því þá fáum við bara á kjaftinn og þetta gæti þá orðið stutt leiktíð."
En hefur þetta ekki loðað við liðið, leik eftir leik eruð þið aldrei hoppandi kátir og eru þetta nú í langflestum tilfellum sigurleikir.
,,Ætli við gerum ekki bara meiri kröfur til sjálfra okkar, við vinnum leiki og komum kannski inn í klefa og erum ekki hoppandi og skoppandi af því að við viljum gera betur. Við vissum líka í mörgum tilfellum að við gátum gert betur en í undanförnum tveimur leikjum höfum við fengið á kjaftinn en við höfum oft fengið þung högg. Þegar höggin hafa komið höfum við oftar en ekki snúið því okkur í vil og jafnvel stolið sigrum en hversu oft eigum við að fá á kjaftinn áður en við rönkum við okkur? Nú þurfum við bara að snúa bökum saman og sýna dug!




