Í kvöld eru þrír leikir á dagskránni í Iceland Express deild karla en þá hefst einnig úrslitakeppnin í 1. deild karla en hana skipa fjögur lið sem berjast um laust sæti í úrvalsdeild á næstu leiktíð. Eins og þegar hefur verið greint frá vann KFÍ 1. deildina og leikur því í úrvalsdeild á næsta tímabili en verða það Skallagrímur, Höttur, Hamar eða ÍA sem fara með þeim í deild þeirra bestu?
Leikir kvöldsins í IEX-deild karla, 19:15:
Valur-KR
Tindastóll-Þór Þorlákshöfn
Keflavík-Stjarnan
Valur-KR
Valsmenn eru fallnir og hafa tapað öllum nítján leikjum sínum í deildinni. KR situr um þessar mundir í 3. sæti-5. sæti deildarinnar með 24 stig eins og Stjarnan og Keflavík.
Tindastóll-Þór Þorlákshöfn
Nýliðar Þórs verma 2. sæti deildarinnar á meðan Stólarnir sitja í 7. sæti með 18 stig. Þórsarar eiga harma að hefna gegn Tindastól sem fóru í Þorlákshöfn og unnu og slógu svo nýliðana út úr bikarkeppninni í Skagafirði. Leikurinn verður í beinni netútsendingu hjá Tindastóll TV.
Keflavík-Stjarnan
Eins og stendur eru þessi lið jöfn að stigum en þannig verður málum ekki háttað eftir kvöldið. Keflavík getur með sigri komið sér í sæti sem gefur heimaleikjarétt í úrslitakeppninni, þ.e. þriðja sætið sem KR situr í um þessar mundir þar sem Keflavík hefur betur innbyrðis gegn KR. Von á miklum slag í Toyota-höllinni.
Úrslitakeppni 1. deildar karla, kl. 19:15:
Hamar-ÍA
Skallagrímur-Höttur
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst í úrslitaseríuna um laust sæti í úrvalsdeildinni. Í úrslitaseríunni þarf einnig að vinna tvo leiki.
Hamar-ÍA
Í deildarkeppninni vann Hamar fyrri leik liðanna 91-99 að Jaðarsbökkum á Akranesi en þegar liðin mættust öðru sinni í Hveragerði fóru leikar 87-78 Hamri í vil svo Skagamenn fá hér að minnsta kosti tvö tækifæri til viðbótar til að finna lykilinn að sigri gegn Hamri.
Skallagrímur-Höttur
Borgnesingar unnu fyrri viðureign liðanna 82-93 á Egilsstöðum en máttu svo þola 86-97 ósigur á heimavelli. Liðin hafa því unnið sinn hvorn slaginn þessa leiktíðina og ætti það ekki að koma neitt á óvart ef hér yrði um oddaleik að ræða. Ef svo verður fer hann fram í Borgarnesi þar sem Skallagrímsmenn hafa heimaleikjaréttinn í einvíginu.




