Falur Harðarson var að vonum kátur eftir að Keflavíkurkonur höfðu fagnað deildarmeistaratitli sínum í DHL-höllinni í dag eftir öruggan sigur gegn KR í lokaumferð úrvalsdeildar kvenna. Nú tekur við úrslitakeppnin þar sem Keflavík mætir Haukum. Falur sagði við Karfan TV í dag að hann væri mjög sáttur með titilinn og að hann byggist við erfiðri úrslitakeppni.




