Borgnesingar gerðu í dag góða ferð austur á Egilsstaði þegar þeir mættu Hetti í öðrum undanúrslitaleik liðanna í 1. deild karla. Lokatölur á Egilsstöðum voru 77-88 Skallagrím í vil sem unnu því einvígið 2-0. Skallagrímur mætir því ÍA eða Hamri í næstu umferð.
Darrell Flake var stigahæstur hjá Skallagrím með 19 stig og 12 fráköst en hjá Hetti var Michael Sloan með 44 stig og 5 fráköst.
Nánar síðar…




