HomeFréttirZaragoza lá gegn stórliði Madrid

Zaragoza lá gegn stórliði Madrid

Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza höfðu ekki erindi sem erfiði þegar liðið lá gegn stórliði Real Madrid á útivelli í ACB deildinni á Spáni í gær. Þá máttu Haukur Helgi og Manresa einnig þola ósigur um helgina.
 
 
Real Madrid 85-71 CAI Zaragoza
Jón Arnór komst ekki á blað í leiknum en hann var í byrjunarliði Zaragoza og lék í tæpar 19 mínútur. Þrír þristar hans vildu ekki niður en Jón gaf tvær stoðsendingar og tók eitt frákast.
 
Manresa 68-89 Valencia
Haukur Helgi Pálsson lék í tæpar fjórar mínútur í leiknum en náði ekki að skora. Stigahæstur hjá Manresa var Justin Doellman með 20 stig.
 
Nú er 25 umferðum lokið á Spáni en deildin telur 18 lið og leikið heima og að heiman, því eru samtals 34 umferðir í boði og þegar þetta er ritað eru Barcelona og Real Madrid jöfn á toppnum með 40 stig, 20 sigra og 5 tapleiki. Zaragoza er í 9. sæti deildarinnar með 13 sigra og 12 tapleiki en Manresa er í 11. sæti með 12 sigra og 13 tapleiki.
 
Staðan á Spáni
Pos Equipo J G P P.F. P.C.  
1   Real Madrid 25 20 5 2.079 1.790  
2   FC Barcelona Regal 25 20 5 1.894 1.607  
3   Caja Laboral 25 18 7 1.830 1.713  
4   Valencia Basket 25 14 11 1.853 1.785  
5   Lucentum Alicante 25 14 11 1.724 1.762  
6   Lagun Aro GBC 25 14 11 1.972 1.894  
7   Banca Cívica 25 13 12 1.857 1.826  
8   Gescrap Bizkaia 25 13 12 1.928 1.905  
9   CAI Zaragoza 25 13 12 1.810 1.788  
10   Unicaja 25 13 12 1.870 1.876  
11   Assignia Manresa 25 12 13 1.812 1.855  
12   FIATC Mutua Joventut 25 11 14 1.809 1.885  
13   Mad-Croc Fuenlabrada 24 10 14 1.720 1.822  
14   Gran Canaria 2014 25 10 15 1.687 1.761  
15   Blusens Monbus 25 8 17 1.753 1.849  
16   UCAM Murcia 25 8 17 1.740 1.846  
17   Asefa Estudiantes 24 7 17 1.647 1.835  
18   Blancos de Rueda Valladolid 25 6 19 1.705 1.891
 
Mynd/ Jón Arnór komst ekki á blað gegn Real Madrid í gær.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -