HomeFréttirÖrvar: Langsótt en við eigum ennþá séns

Örvar: Langsótt en við eigum ennþá séns

Fjölnismenn eiga ennþá tölfræðilegan möguleika á því að komast í úrslitakeppnina þrátt fyrir tap í gær gegn Stjörnumönnum í Ásgarði 82-74. Fjölnismenn verða að treysta á að ÍR og Njarðvík tapi þeim leikjum sem þau eiga eftir og vinna síðasta leik sinn gegn Keflavík n.k. fimmtudag. Fjölnismenn geta hinsvegar glaðst yfir því að sæti þeirra í efstu deild er tryggt eftir tap Hauka gegn KR en fyrir umferðina í gær var ennþá möguleiki á falli fyrir Grafarvogsliðið.  Örvar Þór Kristjánsson þjálfari liðsins var nokkuð brattur eftir leik liðsins í gær þrátt fyrir tap.
„Við vissum að þetta yrði harður slagur hérna í Ásgarði enda Stjarnan með gríðarlega öflugt lið. Til þess að sigra hérna þurfa lið að eiga topp leik en því miður náðum við ekki alveg okkar bestu framistöðu. Ég er samt nokkuð sáttur við leik minna manna en við börðumst af krafti allan tímann en því miður þá féllu ekki „stóru“ skotin okkar að þessu sinni á þeim kafla sem við áttum okkar besta áhlaup.  Sigur Stjörnumanna var verðskuldaður en við gáfum þeim ekkert og þeir þurftu virkilega að hafa fyrir þessu. Mér fannst vera úrslitakeppnis fílingur yfir leiknum sem var vel spilaður enda tóku menn hressilega á því. Stjörnumenn verða beittir í úrslitakeppninni og virðast vera að toppa á réttum tíma og eru virkilega þéttir,“ sagði Örvar og fannst það einnig vel við hæfi að hrósa dómarapari leiksins. „Dómarar leiksins eiga mikið hrós skilið, auðvitað var eitt og eitt atvik sem við Teitur vorum að þræta um en mér fannst þeir heilt yfir vera virkilega flottir og komnir í úrslitakeppnis gírinn. Topp menn.“
 
„Að sæti okkar í deildinni sé nú endanlega tryggt er auðvitað frábært og mikill léttir en Haukarnir komu með frábært „run“ undir lokin og settu mikla pressu á liðin fyrir ofan. Það vill enginn falla en Haukarnir geta borið höfuðið hátt eftir flottan endasprett, þeir koma upp aftur fljótlega það er á hreinu,“ sagði Örvar og bætti við að nú væri úrslitakeppnin fjarlægur draumur. „Við verðum að treysta á hagstæð úrslit og klára okkar leik gegn Keflavík. Það er alveg ljóst að þetta er svolítið langsótt en ekkert er ómögulegt í þessum efnum og við erum bjartsýnir enda ekkert annað í boði,“ sagði Örvar að lokum.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -