Nú þegar „Marsfárið“ fer að ná hámarki er ekki úr vegi að kynna NCAA „appið“ til sögunnar til að fylgjast með stöðu mála, en allir sannir körfuboltaáhugamenn fylgjast grant með framgangi keppninnar hér heima.
Forritið fylgist með lifandi tölfræði allra leikja og hægt er að sjá alla tölfræði hvers leiks.
Það býður upp á að senda viðvaranir ef til dæmis leikir eru jafnir þegar 2 mín. eru eftir og einnig ef hugsanlegt „upset“ gæti verið að eiga sér stað og ef leikir fara í framlengingu. Að sjálfsögðu er hægt að skoða rekkann (e. Bracket) eins og hann er hverju sinni, sjá næstu leiki og sjá væntanlega mótherja.
Forritið er mjög viðmótsvænt og sannkallað augnayndi og mjög þægilegt að fylgjast með öllu helsta úr hverjum leik.
Því miður er ekki hægt að kaupa áskrift og horfa á leiki fyrir utan bandaríkin en forritið styður við það fyrir þá sem eru staddir í ,,US and A." Einnig er hægt að „Twitta“ og senda á Fésbókina stöðu mála beint úr forritinu og láta vita með hverjum viðkomandi heldur.
Forritið má nálgast frítt í Appstore undir „NCAA“ eða „March Madness“




