HomeFréttirDerek Fisher stefnir á sjötta titilinn með Oklahoma City Thunder

Derek Fisher stefnir á sjötta titilinn með Oklahoma City Thunder

Derek Fisher skrifaði í gær undir samning hjá Oklahoma City Thunder og mun spila með þeim það sem eftir lifir tímabils.  Derek Fisher var skipt til Houston Rockets frá Lakers, þar sem hann hefur unnið fimm titla á síðustu árum,  fyrir Jordan HIll og valrétt í næsta drafti.  Derek Fisher kaus þá að kaupa sig út úr samningi hjá Houston og segja reglurnar að eftir slík skipti má leikmaður skrifa undir hjá hvaða liði sem er í deildinni nema því liði sem honum var skipt frá, í þetta skiptið Lakers.
Oklahoma hafa því bætt við miklum reynslubolta sem mun vafalaust skipta sköpum fyrir ungt en hæfileikarítk lið Thunder þegar þeir gera atlögu að sínum fyrsta titli.  Stuðningsmenn Thunder bíða líklega spenntir eftir að sjá hvernig Fisher mun ganga að fylla uppí skarð Eric Maynor sem var leikstjórnandi númer tvö hjá liðinu en er frá út tímabilið vegna hnémeiðsla .Eitt er þó ljóst, að nærvera Fisher og reynslan ein mun hjálpa liðinu í komandi átökum.  Fisher mun hafa valið sér treyju númer 37 sem er táknræn að því leiti að Fisher er 37 ára um þessar mundir.  
 
Oklahome Thunder sitja eins og er í efsta sæti vesturdeildarinnar með 74% sigurhlutfall en aðeins Chicago og Miami hafa betra sigurhlutfall í deildinni. 
Fréttir
- Auglýsing -