Í kvöld fer fram lokaumferðin í Iceland Express deild karla og þá skýrist endanlega hvernig úrslitakeppnin verður skipuð en þegar eru Haukar og Valur fallin í 1. deild. Grindvíkingar eru orðnir deildarmeistarar og fá Stjörnuna í heimsókn í stórslag kvöldsins.
Leikir kvöldsins í IEX deild karla, 19:15:
Haukar-Þór Þorlákshöfn
Valur-Snæfell
Tindastóll-Njarðvík
Grindavík-Stjarnan
Fjölnir-Keflavík
ÍR-KR
Óskar Ófeigur Jónsson íþróttafréttamaður hjá Fréttablaðinu og Vísi.is hefur gert ítarlega úttekt á því sem mögulega gæti gerst og hvernig þetta getur nú allt saman farið eftir leiki kvöldsins og ætlum við að ,,hlekkja" á úttekt hans á Vísir.is enda óþarft að tvítaka það sem vel er gert.




