HomeFréttirLokaumferðin- úrslit kvöldsins og lokastaðan

Lokaumferðin- úrslit kvöldsins og lokastaðan

Lokaumferð Iceland Express deildarinnar fór fram í kvöld.  Mikil spenna var um hvaða lið myndu tryggja sér heimavallaréttinn í úrslitakeppninni og það kom ekki í ljós fyrr en á lokasekúndum leikjanna.  Myndin hér að ofan sýnir hvaða lið mætast í 8 liða úrslitum.  
Grindavík 89-80 Stjarnan

Grindavík endaði deildina með stæl og kom í veg fyrir að Stjarnan tæki annað sætið af KR.  Stjarnan endar því í 4 sæti deildarinnar þar sem bæði KR og Þór Þ. unnu sína leiki í kvöld.  

Stigahæstu menn Grindvíkur voru Giordan Watson með 24 stig og 8 stoðsendingar, Sigurður Þorsteinsson með 12 stig og 7 fráköst og J’Nathan Bullock með 9 stig og 7 fráköst.  Aðeins tveir leikmenn komust ekki á blað hjá Grindvíkingum í kvöld.

Í liði Stjörnunnar var Renato Lindmets atkvæðamestur með 24 stig og 9 fráköst en næstir voru Justin Shouse með 21 stig og 7 stoðsendingar og Keith Cothran með 14 stig og 5 fráköst.  

 

ÍR 82-88 KR 

KR sigldi fram úr ÍR í fjórða leikhluta og tryggði sér annað sætið í deildinni með 6 stiga sigir á ÍR í hellinum.  KR hefur því heimavallaréttin í úrslitakeppninni þangað til það mætir Grindavík

Stigahæstur í liði KR í kvöld var Finnur Atli Magnússon með 24 stig og 11 fráköst en næstir voru Joshua Brown með 18 stig og 6 fráköst og Robert Ferguson með 17 stig og 11 fráköst.  

Í liði ÍR var Robert Jarvis stigahæstur með 25 stig og 6 fráköst en næstir voru Rodney Alexander með 23 stig og 10 fráköst og Nemanja Sovic með 16 stig.  

 

Tindastóll 81- 79 Njarðvík

Niðurstaðan í þessum leik hefur ekki áhrif á röðunina inní úrslitakeppnina þar sem Njarðvík hefði þurft meira en 7 stiga sigur á Tindastól til þess að fara upp fyrir þá í deildinni.  

Stigahæstu í liði Tindastóls í kvöld var Maurice Miller með 31 stig 6 fráköst og 5 stoðsendingar en næstir voru Curtis Allen með 18 stig og 9 fráköst og Þröstur Leó Jóhannsson með 11 stig.  

Í liði Njarðvíkur var Cameron Echols stigahæstur með 26 stig og 12 fráköst en næstir voru Elvar Friðriksson með 20 stig og Travis Holmes með 13 stig.  

 

Fjölnir 98- 99 Keflavík 

Framlengja þurfti leik Fjölnis og Keflavíkur en staðan var 86-86 eftir venjulegan leiktíma.  Keflavík situr því sem fastast í 5. sæti deildarinnar þar sem önnur úrslit voru þeim ekki hagstæð.  

Stigahæstur í liði Keflavíkur var Jerryd Cole með 37 stig og 19 fráköst en næstu menn voru Magnús Gunnarsson með 28 stig og Charles Parker með 14 stig.  

Í liði Fjölnis var Arnþór Guðmundsson atkvæðamestur með 18 stig og 8 stoðsendingar en næstir voru unglingurinn Björgin Hafþór Ríkarðsson með 17 stig og Nathan Walkup með 16 stig og 12 fráköst.  

 

Haukar 79-85 Þór Þorlákshöfn

Þór Þorlákshöfn tryggði sér með sigrinum í kvöld þriðja sætið í deildinni, jafnt KR að stigum en KR hafði betur í innbyrgðis viðureignum.  

Stigahæsti maður Þórs í leiknum í kvöld var Darren Govens með myndarlega þrefalda tvennu, 26 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar.  Næstu menn voru Darri Hilmarsson með 20 stig og 7 fráköst og Guðmundur Jónsson með 18 stig.  

Í liði Hauka var Christopher Smith stigahæstur með 20 stig og 7 fráköst en næstir voru Joseph-Pauline með 16 stig, 5 fráköst og 7 stoðsendingar og Haukur Óskarsson með 12 stig.  

 

 

 

Valur 68 – 80  Snæfell

Hvorugt liðana höfðu að neinu að keppa í kvöld þar sem Valur var fallið og Snæfell var öruggt í 6. sæti deildarinnar.  

Stigahæstumenn Snæfells voru Ólafur Torfason með 15 stig og 10 fráköst en næstiru voru Marquis Hall með 14 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar og Jón Ólafur Jónsson með 13 stig og 11 fráköst.

Í liði Vals var Marvin Jackson með 25 stig og 12 fráköst en næstir voru Hamid Dicko með 13 stig og 8 fráköst og Alexander Dungal með 7 stig.  

 

Lokastaðan í deildinni er því :

1.

Grindavík

19/3

38

2.

KR

15/7

30

3.

Þór Þorlákshöfn

15/7

30

4.

Stjarnan

14/8

28

5.

Keflavík

13/8

26

6.

Snæfell

13/9

26

7.

Tindastóll

11/11

22

8.

Njarðvík

9/13

18

9.

ÍR

8/14

16

10.

Fjölnir

8/13

16

11.

Haukar

6/16

12

12.

Valur

0/22

0

Fréttir
- Auglýsing -