HomeFréttirTindastóll tryggði 7. sæti með sigri á Njarðvík

Tindastóll tryggði 7. sæti með sigri á Njarðvík

Tindastóll og Njarðvík mættust í Síkinu í kvöld í leik sem réð úrslitum um sjöunda til áttunda sætið í deildinni. Stólarnir stóðu betur að vígi með 20 stig, en Njarðvík var með tveimur minna og þurftu sigur til að tryggja sig inn í úrslitakeppnina, annars þurftu þeir að treysta á nágranna sína í Keflavík á móti Fjölni. Það var skarði fyrir skildi hjá heimamönnum að Igor Tratnik var í banni og Helgi Freyr Margeirsson frá vegna meiðsla sem líklega setja hann úr leik út tímabilið.
Leikurinn hófst af miklum krafti og virtust heimamenn mæta betur stemmdir til leiks. Nokkuð mikill hraði var í leiknum, en fyrstu mínúturnar var þó leikurinn í járnum, en um miðjan fyrsta leikhluta fór vörn heimamanna að bera árangur. Stólarnir stálu nokkrum boltum í vörninni og uppskáru hraðaupphlaup sem yfirleitt enduðu með troðslu hinu megin. Staðan breyttist úr 13 – 12 um miðjan leikhlutann, í 29 – 16 sem var staðan þegar fyrsta leikhluta lauk.
 
Tindastólsmenn slógu ekkert af í byrjun 2. leikhluta og voru fljótlega komnir með 17 stiga forystu, 35 – 18 og aftur í stöðunni 41 – 24 og allt virtist leika í lyndi hjá heimamönnum. Þá breyttu gestirnir í svæðisvörn og söxuðu síðan jafnt og þétt á forskotið á meðan allt virtist fara í baklás hjá Tindastólsmönnum.  Þegar flautað var til leikhlés var staðan orðin 43 – 38 og gestirnir höfðu smellt í 12 – 2 sprett síðustu mínútur fyrri hálfleiks. Hjá Stólunum voru þeir Curtis Allen og Maurice Miller allt í öllu, Allen með 18 stig og Miller 14 í fyrri hálfleik. Hinu megin voru þeir jafnir með 10 stig, Echols og Elvar Már.
 
Stólarnir virtust ætla að hrista Njarðvíkina af sér í byrjun síðari hálfleiks, en eftir um tvær mínútur datt allur botn úr leik liðsins og stemmningin var öll gesta megin sem gengu á lagið og jöfnuðu leikinn 54 – 54. Þeir voru síðan komnir með 7 stiga forskot í stöðunni 56 – 63 þegar um tvær mínútur lifðu af þriðja leikhluta og heimamönnum leist ekkert á blikuna. Lítið var skorað fram að lokum þriðja fjórðungs og staðan 56 – 64 þegar menn fóru inn í síðasta leikhlutann.
 
Heimamenn voru nú ekkert á því að gefast upp og vel studdir af áhorfendum komust þeir yfir 69 – 66 þegar síðasti leikhlutinn var nákvæmlega hálfnaður. Tindastólsmenn héldu síðan þetta 1-3 stiga forskoti næstu mínúturnar og mikil spenna í Síkinu. Þegar tuttugu sekúndur voru eftir fór Miller á vítalínuna fyrir heimamenn og hitti úr báðunum vítunum og kom stöðunni í 79 – 76. Njarðvík hélt í snögga sókn sem endaði með þriggjastiga skoti frá Travis Holmes sem small ofan í og leikurinn jafn.  Enn voru um átta sekúndur eftir og Bárður tók leikhlé fyrir Tindastól. Uppúr innkastinu fékk Miller boltann og keyrði sterkt á körfuna þar sem brotið var á honum og þrjár sekúndur eftir. Hann nýtti bæði vítin, en þar sem Njarðvíkingar voru búnir með leikhléin þurfu þeir að reyna langa sendingu fram sem Helgi Rafn komst inn í og tryggði þar með endanlega sætan sigur, 81 – 79.
 
Tindastólsmenn léku frábærlega fyrstu 15 mínútur leiksins, en síðan gekk lítið upp og menn virtust vera að missa leikinn úr höndum sér. En Stólarnir hafa verið sterkir í vetur í lok jafnra leikja og það sannaðist í kvöld. Þeir unnu síðasta leikhlutann með 8 stigum og sýndu mikla yfirvegun í restina.  Njarðvíkingar virtust ætla að láta valta yfir sig framan af leik, en komu sér síðan inn í leikinn og voru komnir á ágætis stöðu eftir þrjá leikhluta. Þeir voru síðan inn í leiknum allt til loka, en vantaði herslumuninn til að klára leikinn.
 
Maurice Miller var mjög góður í kvöld fyrir Tindastól og skilaði 31 stigi og 5 stoðsendingum. Næstur kom Curtis Allen með 18 stig og 9 fráköst og Þröstur Leó var sprækur með 11 stig.  Hjá Njarðvík var Cameron Echols með 26 stig og 12 fráköst og Elvar Már með 20 stig og réðu Stólarnir lítið við hann á köflum.
 
Stólarnir mæta KR í 8 liða úrslitum, en Njarðvík, sem slapp inn í þau eftir tap Fjölnis gegn Keflavík, mætir Grindavík.
 
Dómarar í kvöld voru þeir Kristinn Óskarsson og Davíð Kr. Hreiðarsson.
 
Byrjunarlið Tindastóls: Curtis, Maurice, Þröstur, Rikki og Helgi Rafn.
Byrjunarlið Njarðvíkur: Cameron, Páll, Ólafur, Elvar Már og Travis.
 
Það má geta þess að það var boðið upp á tvíhöfða í Síkinu í kvöld þegar sömu lið mættust í drengjaflokki. Eftir hörku leik höfðu Njarðvíkingar betur 83 – 82 og höfðu sigur í A-riðli, en Stólarnir sitja eftir í þriðja sæti.
 
 
Texti: JS 
Fréttir
- Auglýsing -