,,Fyrir bæði lið var þetta glæsilegur leikur og einnig fyrir áhorfendur. Leiðinlegt fyrir Fjölni vissulega að missa af úrslitakeppninni en fyrir okkur að sama skapi ágætt að klára svona leik því við höfum verið dálítið lélegir í því undanfarið og gott veganesti inn í úrslitakeppnina," sagði vígreifur Sigurður Ingimundarson eftir eins stigs sigur Keflavíkur á Fjölni í Dalhúsum í kvöld.
Keflavík mætir því Stjörnunni í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en Stjarnan vann báða deildarleiki liðanna á tímabilinu.
,,Okkur hefur gengið illa með Stjörnuna í vetur og ekki náð að vinna þá en eins og góður maður sagði þá er úrslitakeppnin ný keppni og það sem hefur þegar gerst á undan kemur málinu ekkert við," sagði Sigurður en Stjarnan verður með heimaleikjaréttinn í seríunni, mun það skipta miklu máli?
,,Menn skyldu halda það enda barist fyrir þessum rétti en Stjarnan hefur verið betri á útivelli í vetur heldur en á heimavelli og það er alveg öruggt hjá okkur að við erum betri á heimavelli en þetta var allt í deildarkeppni. Nú er úrslitakeppnin framundan og það er önnur keppni sem enginn veit hvernig fer svo við erum ekki mikið að velta þessu fyrir okkur," sagði Sigurður sem lék á öllum sínum mönnum í kvöld.
Ertu að hvetja þessa yngri menn og setja pressu á þá til að stíga upp og taka sér hlutverk?
,,Já já, og þeir hafa allir spilað í vetur í nokkrum leikjum. Mér fannst þetta vera svona leikur þar sem allir þyrftu að fara inn á völlinn. Þetta gekk bara fínt og margir ungir þarna á ferðinni sem hafa fengið ágætis eldskírn.




