Benedikt Guðmundsson og nýliðar Þórs úr Þorlákshöfn skráðu sig í kvöld á spjöld sögunnar þegar Þór náði bestum árangri nýliða frá því keppni hófst í 12 liða deild. Þórsarar luku deildarkeppninni í 3. sæti en áður hafði Benedikt einnig verið handhafi metsins er hann stýrði Fjölni inn í 4. sæti deildarinnar. ,,Maður þarf að halda þessu meira á lofti," sagði Benedikt þegar honum voru færð tíðindin af þessu nýja Íslandsmeti en Þór vann sigur á Haukum í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði í kvöld í lokaumferð Iceland Express deildarinnar.
Var 3. sæti eitthvað sem þú gast leyft þér að óra fyrir í upphafi tímabils?
,,Já og nei, auðvitað stefndum við bara hátt og það geta fáir í Þorlákshöfn eða annars staðar sagst hafa séð þetta fyrir en það er allt hægt í þessu ef metnaðurinn og viljinn er fyrir hendi," sagði Benedikt en fannst honum eins og andstæðingar kvöldins, Haukar, séu með sterkari liðum til að falla?
,,Haukar voru flottir í kvöld og spiluðu fínt, þeir fengu góðan leik frá nokkuð mörgum og koma fljótt upp aftur ef þeir halda kjarnanum sínum," sagði Benedikt en aðspurður um komandi rimmu í 8-liða úrslitum gegn Inga Þór uppeldisfélaga sínum og liðsmönnum hans í Snæfell sagði Benni:
,,Ég ætla gera allt til þess að slá hann út og koma í veg fyrir að hann hámi í sig einhverja Boxmastera," sagði Benedikt kíminn eins og hann á til að sér en gerðist svo öllu alvarlegri.
,,Við erum að fara að mæta liði sem varð meistari fyrir einhverjum 22 mánuðum og hefur allt öðruvísi sögu á bak við sig. Hjá Þór er þetta alveg nýtt á meðan Snæfell hefur mikla reynslu og koma inn á góðri ferð í úrslitakeppnina með fjóra sigurleiki í röð," sagði Benni en verður heimaleikjaréttur Þórs eitthvað sem vega mun þungt?
,,Við skorum alltaf meira á útivöllum og ef til oddaleiks kemur þá eigum við heimavöllin en auðvitað stefna bæði lið að því að klára þetta í tveimur leikjum. Í deildinni unnum við heima þegar Snæfell átti að vinna og úti vann Snæfell þegar mér fannst að Þór hefði átt að vinna svo liðin skiptu deildarleikjunum nokkuð jafnt með sér í vetur. "




