HomeFréttirViðureign Zaragoza og Manresa við það að hefjast

Viðureign Zaragoza og Manresa við það að hefjast

Skúli Sigurðsson er staddur á Spáni til að fylgjast með viðureign CAI Zaragoza og Manresa í ACB deildinni en þar eigast við tveir af fremstu körfuknattleiksmönnum okkar Íslendinga, þeir Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson. Skúli hitti á kappana skömmu fyrir leik og náði mynd af þeim félögum.
 
Leikurinn fer fram á heimavelli Zaragoza þar sem Skúli leit m.a. við á æfingu hjá félaginu og aðstaðan, já hún var ekkert slor að sögn Skúla. Þegar þetta er ritað eru um 40 mínútur í leik og þessi slagur skiptir nokkru máli enda liðin í 10. og 11. sæti deildarinnar, Zaragoza í 10. sæti en Manresa í 11. sæti.
 
Meira síðar…
 
Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræðilýsingu frá leiknum á www.acb.com
 
Mynd/ [email protected]Félagarnir Haukur Helgi Pálsson og Jón Arnór Stefánsson kumpánlegir fyrir slaginn en í 40 mínútur eða svo verður náungakærleikurinn lagður til hliðar og barist um tvö mikilvæg stig. 
Fréttir
- Auglýsing -