Skagamenn tryggðu sér í kvöld oddaleik í úrslitum 1. deildar karla er þeir lögðu Skallagrím 89-84 í öðrum leik liðanna í baráttunni um laust sæti í úrvalsdeild karla. Áskell Jónsson steig vel upp í liði Skagamanna með 20 stig en hjá gestunum úr Borgarnesi var Lloyd Harrison með 28 stig og 6 stoðsendingar. Fáar neglur á Akranesi og í Borgarnesi hafa lifað af þessa viðureign en hnífjafnt var hjá liðunum frá upphafi til enda en þegar í harðbakka sló reyndust Skagamenn hungraðri í sigur.
Liðin settu í fimmta gír strax á upphafsmínútunum og heimemnn í ÍA virtust kunna betur við það og leiddu 8-2. Borgnesingar jöfnuðu sig fljótt enda ekki fjarri heimaslóðum svo orkustöðvarnar ruku í gang og 14-17 gestina í vil þegar Hörður Helgi Hreiðarsson skoraði og fékk villu að auki.
Darrell Flake snérist í kringum sjálfan sig í fyrsta leikhluta og ef það var ekki verið að dæma á hann þrjár sekúndur þá var það skref, mistæk byrjun hjá þessum margreynda kappa. Skagamenn hentu í 6-0 rispu og leiddu svo 24-19 að loknum fyrsta leikhluta þar sem Áskell Jónsson átti lokaorðið fyrir heimamenn en Áskell var beittur í kvöld og kominn með 10 stig í fyrsta leikluta.
Sókn skyldi það vera og ekkert múður, annar leikhluti var gersamlega snauður öllum varnarleik og Skagamenn lömdu títt á Borgnesingum sem fengu skotrétt eftir tvær og hálfa mínútu. Terrance Watson sem var rólegur framan af ákvað að stimpla sig inn í annan leikhluta og gerði það þegar Elvar Sigurjónsson mætti honum á blokkinni. Það voru fremur létt stig fyrir Watson svo Pálmi setti inni Hörð Helga og umsvifalaust náði Hörður að kynda undir Watson, splæst í tvívillu um leið og kappar mættust á parketinu. Hörður nældi sér síðar í sína þrijðu villu sem var sóknarbrot.
Borgnesingar náðu að saxa niður mun ÍA og stóðu leikar 57-54 í hálfleik þar sem Lorenzo McClelland setti niður tvö víti þegar 1,6 sekúnda var eftir. Áskell Jónsson var með 17 stig hjá ÍA í leikhléi en Darrell Flake 16 stig í liði Skallagríms.
Skotnýting liðanna í hálfleik:
ÍA: Tveggja 63,1%, þriggja 20% og víti 60%
Skallagrímur: Tveggja 71,4%, þriggja 30% og víti 75%
Harrison fór fyrir Skallagrím í þriðja leikhluta, nokkuð hægðist á stigaskori beggja liða enda tempóið hátt og menn farnir að blása víða um völl. Hörður Helgi Hreiðarsson fékk sína fjórðu villu í liði Skallagríms um miðbik leikhlutans en skömmu síðar jafnaði Lloyd fyrir gestina með þrist 66-66 og hafði þá gert fimm stig í röð. Sigurður Rúnar Sigurðsson átti fína spretti í leikhlutanum fyrir ÍA og gulir leiddu 72-68 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
Fullt var að Jaðarsbökkum og mikil stemmning í húsinu, bæði lið með dyggar trommusveitir og aldrei lát á stuðningnum. Vel gert!
Í fjórða leikhluta fór allt í brotajárn, mönnum gekk illa að skora, margir feimnir við að taka af skarið og hver karfa var gulls ígildi. Stigalaust var í tvær mínútur uns Terrence Watson setti niður víti fyrir ÍA og staðan 83-80. Skömmu síðar réðist Lorenzo McClelland á endalínuna, upp að körfu og kom ÍA í 85-82 þegar rétt rúm mínúta var til leiksloka.
Sigmar margreyndi Egilsson minnkaði muninn í 85-84 þegar 40 sekúndur voru til leiksloka og aftur fundu Borgnesingar sig á línunni þegar 6,6 sekúndur voru eftir og staðan þá 87-84 fyrir ÍA. Hörður Helgi Hreiðarsson hélt á línuna og misnotaði bæði vítin, það gerði fjögur misst víti í röð hjá kappanum. Borgnesingar brutu af sér í frákastabaráttunni og sigurinn var þá í höfn. Spilandi þjálfari ÍA, Watson, tölti sér yfir og sökkti tveimur vítum og lokatölur því 89-84 í leik sem hafði allt upp á að bjóða, hraða, stemmningu, forystubreytingar og endalaus læti. Oddaleikurinn ætti að verða svakalegur uppi í Borgarnesi!
Byrjunarliðin:
ÍA: Lorenzo McClelland, Hörður Nikulásson, Terrance Watson, Áskell Jónsson, Dagur Þórisson.
Skallagrímur: Lloyd Harrison, Sigmar Egilsson, Hörður Helgi Hreiðarsson, Egill Egilsson, Darrell Flake.
Heilarskor:
ÍA: Áskell Jónsson 20, Lorenzo Lee McClelland 20/6 stoðsendingar, Terrence Watson 19/18 fráköst/6 stoðsendingar, Sigurður Rúnar Sigurðsson 11, Hörður Kristján Nikulásson 10/6 fráköst, Dagur Þórisson 4, Ómar Örn Helgason 3, Trausti Freyr Jónsson 2, Oddur Helgi Óskarsson 0, Birkir Guðjónsson 0, Örn Arnarson 0, Böðvar Sigurvin Björnsson 0.
Skallagrímur: Lloyd Harrison 28/6 stoðsendingar, Darrell Flake 21/12 fráköst, Egill Egilsson 12, Danny Rashad Sumner 10, Sigmar Egilsson 8/4 fráköst, Hörður Helgi Hreiðarsson 5, Elvar Þór Sigurjónsson 0/4 fráköst, Óðinn Guðmundsson 0, Elfar Már Ólafsson 0, Davíð Ásgeirsson 0, Davíð Guðmundsson 0, Andrés Kristjánsson 0.
Mynd/ [email protected]
Umfjöllun/ [email protected]




