Önnur undanúrslitaviðureign Hauka og Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna er hafin í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði. Staðan í einvíginu er 0-1 Haukum í vil eftir sigur liðsins í fyrsta leiknum í Toyota-höllinni í Keflavík.
– Leik lokið: Haukar 73-68 Keflavík og Haukar taka 2-0 forystu eftir mikinn spennuslag hér í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði. Jence lauk leik með 29 stig fyrir Hauka. Hjá Keflavík var Jaleesa Butler með 24 stig.
– Haukar eru að vinna sigur á Keflavík hérna. Keflavík átti innkast þegar 9,3 sekúndur voru eftir en grýttu boltanum frá sér. Gunnhildur fékk tvö víti, setti annað niður og staðan 73-68 fyrir Hauka…
– 9,3 sek eftir: Gunnhildur Gunnars á vítalínunni fyrir Hauka, setur bæði vítin og staðan orðin 72-68 og Keflvíkingar taka leikhlé! Tierney Jenkins náði risavöxnu sóknarfrákasti þegar 17 sekúndur voru til leiksloka og Keflvíkingar brutu á Gunnhildi þegar 9,3 sekúndur voru eftir og henni brást ekki bogalistin á vítalínunni.
– 55 sek eftir: María Lind kemur Haukum í 70-68 með körfu í teignum og Keflavík tapar boltanum í næstu sókn.
– 1.27mín til leiksloka: Haukar 68-66 Keflavík og gestirnir taka leikhlé. Lokamínúturnar hafa verið æsispennandi þar sem liðin hafa skiptst á forystunni. Jence með 29 stig í liði Hauka en Jaleesa Butler er með 22 stig og 12 fráköst í liði Keflavíkur.
– 5.20mín til leiksloka: Staðan 60-62 fyrir Keflavík. Birna Valgarðs að fá sína fjórðu villu í liði Keflavíkur.
– 8.50mín til leiksloka: Guðrún Ámundadóttir leidd af velli eftir meiðsli. Fólk enn með óhug yfir meiðslum Írisar en þetta er fjarri því jafn alvarlegt. Staðan 53-58 fyrir Keflavík.
– Þriðja leikhluta lokið: Staðan 53-56 fyrir Keflavík sem vann þriðja leikhluta 14-24.
– 36 sek eftir af þriðja og staðan 53-53
– 3.31mín eftir af þriðja: Staðan 48-48 og hér elskurnar er kominn ,,brotajárnatími" – þetta verða vísast blóði drifnar lokamínútur. Upp með sokkana!
– 6.00mín eftir af þriðja. Staðan 42-41 fyrir Hauka og Keflvíkingar farnir að sauma að heimkonum sem taka leikhlé fyrir vikið.
– Síðari hálfleikur var að hefjast, mínúta liðin og enn ekkert skorað. Birna Valgarðsdóttir er á vítalínunni en hún er komin með 3 villur í liði Keflavíkur, eini leikmaðurinn sem kominn er með svo margar villur.
– Hálfleikur: Haukar 39-33 Keflavík. Jence Rhoads með 21 stig í liði Hauka en Jaleesa Butler með 10 stig og 8 fráköst í liði Keflavíkur.
– 1.02mín í hálfleik: 37-27 fyrir Hauka. Keflvíkingar í bullandi vandræðum með Jence Rhoads sem er komin með 19 stig.
– 4.23mín í hálfleik: Haukar 30-23 Keflavík. Liðin svona að smokra sér af stað eftir hléið langa. Keflvíkingar eru komnir í svæðisvörn.
– Við vorum að fá það staðfest að Íris fór úr hnélið við meiðslin en meðan beðið var eftir sjúkrabíl hrökk hún aftur í hnélið.
– Nú fer leikur að hefjast á ný, Íris er komin um borð í sjúkrabíl og fær tilheyrandi aðhlynningu.
– Mögulega hefur Íris farið úr hnélið en þetta skýrist allt með kvöldinu og á morgun, enn er hlé á leiknum á meðan hlúð er að Írisi.
– Hér er enn hlé á leiknum og ekki hreyft við Írisi sem enn liggur við endalínu vallarins, sárþjáð. Lögregla og sjúkrabíll eru að renna í hlað. Írisi eru hér með sendar umsvifalausar batakveðjur.
– 6.54mín eftir af öðrum leikhluta: Hér er verið að kalla á sjúkrabíl í snarhasti, Íris Sverrisdóttir lenti illa í hraðaupphlaupi og liggur enn óvíg eftir. Gert hefur verið hlé á leiknum og því miður er útlitið ekki gott. Hópur góðra manna stormar yfir Írisi og veitir henni aðhlynningu.
– Annar leikhluti hafinn, um 12 mínútur liðnar af þessum slag og hin öfluga Jaleesa Butler er ekki enn búin að skora hjá Keflavík.
– Fyrsta leikhluta lokið: Haukar 22-15 Keflavík – Margrét Rósa Hálfdánardóttir gerði síðustu stig leikhlutans fyrir Hauka þegar sekúnda var eftir þar sem Tierney Jenkins fann hana eina í teignum. Falleg lokasókn hjá Haukum.
– 1.40mín eftir af fyrsta: Haukar 14-10 Keflavík. Gestirnir að ranka við sér úr rotinu sem þær mættu í.
– 3.10mín eftir af fyrsta: 11-4 fyrir Hauka og Keflvíkingar eru ekki svipur hjá sjón. Algerlega andlausar.
– 4.50mín eftir af fyrsta: Helga Hallgríms kemur Keflavík á blað, staðan 7-2 fyrir Hauka. Hér gengur allt nema að skora.
– Hér koma svo byrjunarliðin:
Haukar: Jence Ann Rhoads, Íris Sverrisdóttir, Margrét Rósa Hálfdánardóttir, Guðrún Ámundadóttir, Tierney Jenkins.
Keflavík: Ebony Mangum, Pálína María Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Helga Hallgrímsdóttir, Jaleesa Butler.
Haukar: Jence Ann Rhoads, Íris Sverrisdóttir, Margrét Rósa Hálfdánardóttir, Guðrún Ámundadóttir, Tierney Jenkins.
Keflavík: Ebony Mangum, Pálína María Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Helga Hallgrímsdóttir, Jaleesa Butler.
– 7.02mín eftir af fyrsta leikhluta þegar Guðrún Ámundadóttir gerir fyrstu stig leiksins af vítalínunni. Liðunum vægast sagt mislagðar hendur hér á upphafsmínútunum.
– Leikur hafinn og bæði lið mistæk og ná ekki að skora á fyrstu tveimur mínútum leiksins.
Mynd/ [email protected] – Íris flutt á brott, meidd. Henni óskum við skjóts bata!




