HomeFréttirKeflvíkingum stillt upp við vegg - Jence frábær í sigri Hauka

Keflvíkingum stillt upp við vegg – Jence frábær í sigri Hauka

Haukar hafa nú stillt Keflvíkingum upp við vegg og leiða 2-0 í undanúrslitarimmu liðanna í Iceland Express deild kvenna. Önnur viðureign liðanna fór fram í Schenkerhöllinni í kvöld þar sem Haukar fóru með 73-68 sigur af hólmi. Haukum dugir einn sigur til viðbótar til að tryggja sér sæti í úrslitum deildarinnar. Sigurinn kom dýrkeytpur að þessu sinni hjá Hafnfirðingum en Íris Sverrisdóttir fór úr hnjálið í leiknum og Guðrún Ámundadóttir varð frá að víkja sökum meiðsla. Jence Rhoads fór fyrir Haukum í kvöld en Jaleesa Butler var atkvæðamest í liði Keflavíkur.
 
 
Þrjár mínútur liðu áður en skorað var í Schenkerhöllinni í kvöld. Spéhræðslan rann þó fljótt af liðunum og Haukar komust í 7-0 eftir þrist frá Jence Rhoads sem var hárbeitt í kvöld. Keflvíkingar lifnuðu við þegar líða tók á leikhlutann en Haukar leiddu 22-15 að honum loknum. Jence Rhods var komin með 9 stig hjá Haukum en hin öfluga Jaleesa Butler komst ekki á blað í stigaskorinu fyrstu tíu mínúturnar.
 
Jence gerði fjögur fyrstu stig Hauka í öðrum leikhluta og Butler stimplaði sig fljótt inn í leikinn fyrir Keflavík en þegar rétt rúmar þrjár mínútur voru liðanar af leikhlutanum urðu Haukar fyrir áfalli. Íris Sverrisdóttir féll þá í jörðina í hraðaupphlaupi og Henning Freyr Henningsson aðstoðarþjálfari Hauka var fljótur að átta sig og lét kalla eftir sjúkrabíl en Íris var farin úr hnjálið. Um hálftíma töf varð á leiknum og að endingu var Íris flutt á brott með sjúkrabifreið.
 
Þegar leikar hófust á ný voru Haukar betur stemmdir og náðu 10 stiga forystu 37-27 þar sem Jence Rhoads var að gera Keflvíkingum lífið leitt. Gestirnir klóruðu þó í bakkann og staðan 39-33 í leikhléi þar sem Jence var komin með 21 stig í liði Hauka en Jaleesa Butler 10 stig og 8 fráköst.
 
Keflvíkingar þéttu varnarleikinn í síðari hálfleik og komust yfir 42-44 með 5-17 sveiflu síðan á lokaspretti fyrri hálfleiks. Haukar jöfnuðu leikinn í 48-48 og hófst þá mikill og æsispennandi lokasprettur. Keflvíkingar leiddu 53-56 eftir þriðja leikhluta og að honum loknum var enginn annar en Magnús Þór Gunnarsson leikmaður karlaliðs Keflavíkur sem fékk sendan borgarskotsboltann fræga. Magnús er mikill öðlingur að upplagi og vildi víst ekki seilast auðveldlega ofan í vasa Iceland Express því miðjuskot fyrir hann er morgunverður. Magnús gaf boltann frá sér og lukkulegur stuðningsmaður Keflavíkur fékk að reyna fyrir sér en hafði ekki erindi sem erfiði. Gjafmildur maður hann Magnús.
 
Fjórði leikhluti var stál í stál frá upphafi til enda, liðin skiptust á forystunni og nokkur harka var komin í leikinn þar sem Keflvíkingar voru að lenda í nokkrum villuvandræðum. Jaleesa Butler jafnaði leikinn í 68-68 þegar rétt tæp mínúta lifði leiks. María Lind kom Haukum í 70-68 og næsta Keflavíkursókn rann út í sandinn án stiga.
 
Þegar öllu var á botninn hvolft voru það stáltaugar Gunnhildar Gunnarsdóttur sem vógu þungt þar sem þrjú víti frá henni rötuðu rétta leið og reyndust tryggja Haukum sigurinn sem og risavaxið sóknarfrákast hjá Tierney Jenkins þegar 17 sekúndur voru eftir. Lokatölur 73-68 Haukum í vil og staðan 2-0 í einvíginu fyrir Hafnarfjarðarkonur.
 
Liðin mætast aftur á miðvikudag í þriðja leiknum þar sem Haukar geta tryggt sér sæti í úrslitum en vinni Keflavík fer fjórði leikurinn fram í Hafnarfirði. Keflvíkingar eiga töluvert inni en Haukar hafa lagt mikið á að gera þeim lífið leitt í langskotum og það tókst sannarlega vel til í kvöld því Keflvíkingar tóku tíu þrista í leiknum án þess að eitt skot rataði rétta leið!
 
Byrjunarliðin:
 
Haukar: Jence Ann Rhoads, Íris Sverrisdóttir, Margrét Rósa Hálfdánardóttir, Guðrún Ámundadóttir, Tierney Jenkins.
 
Keflavík: Ebony Mangum, Pálína María Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Helga Hallgrímsdóttir, Jaleesa Butler.
 
Heildarskor:
 
Haukar: Jence Ann Rhoads 29/3 varin skot, Tierny Jenkins 15/22 fráköst/7 stoðsendingar/5 varin skot, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 11, María Lind Sigurðardóttir 8/4 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 8/5 stolnir, Guðrún Ósk Ámundardóttir 2/4 fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Sara Pálmadóttir 0, Íris Sverrisdóttir 0, Inga Sif Sigfúsdóttir 0, Ína Salóme Sturludóttir 0, Auður Íris Ólafsdóttir 0.
 
Keflavík: Jaleesa Butler 24/13 fráköst/8 varin skot, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14/4 varin skot, Eboni Monique Mangum 13/8 stoðsendingar, Helga Hallgrímsdóttir 6/9 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 6, Pálína Gunnlaugsdóttir 4/4 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 1, Telma Lind Ásgeirsdóttir 0, Lovísa Falsdóttir 0, Soffía Rún Skúladóttir 0, Hrund Jóhannsdóttir 0, Aníta Eva Viðarsdóttir 0.
 
Umfjöllun/ [email protected] 
Fréttir
- Auglýsing -