Dagur Þórisson hefur verið lengi að en hann gerði níu stig í gærkvöldi þegar ÍA mátti sjá á eftir Skallagrím í úrvalsdeildina að loknum oddaleik liðanna í Fjósinu. Dagur sagði að Skaginn hefði meira verið að hugsa um að halda sér frá falli heldur en nokkuð annað þegar tímabilið hófst. Á daginn kom að ÍA er spútniklið 1. deildar og nú bíður fólk eflaust spennt eftir því að fá að vita hvort Dagur ætli ekki að taka enn eitt tímabilið til viðbótar með gulum.




