HomeFréttirÚrslit: Grindavík í úrvalsdeild - Haukar sópuðu Keflavík!

Úrslit: Grindavík í úrvalsdeild – Haukar sópuðu Keflavík!

 
Í kvöld dró til tíðinda í kvennaboltanum þegar Grindavík tryggði sér sæti í úrvalsdeild kvenna á nýjan leik með sigri á KFÍ í oddaleik. Þá sópuðu Haukar ríkjandi Íslandsmeisturum Keflavíkur í sumarfrí með stórsigri í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ.
Úrslit í 1. deild kvenna
Grindavík 50-47 KFÍ
Grindavík 2-1 KFÍ (seríu lokið)
Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir gerði 17 stig og tók 9 fráköst fyrir KFÍ á sínum gamla heimavelli í Grindavík en Ingibjörg Sigurðardóttir var atkvæðamest í sigurliði Grindavíkur með 12 stig og 13 fráköst.
 
Úrslit í Iceland Express deild kvenna
Keflavík 52-75 Haukar
Keflavík 0-3 Haukar (seríu lokið)
Jence Ann Rhoads fór mikinn í liði Hauka með 31 stig, 11 fráköst og 5 stoðsendingar. Hjá Keflavík voru Birna Valgarðsdóttir og Pálína María Gunnlaugsdóttir báðar með 8 stig.
 
Nánar síðar…
Fréttir
- Auglýsing -