HomeFréttirBein textalýsing : KR 82 - 68 Tindastóll - Leik lokið

Bein textalýsing : KR 82 – 68 Tindastóll – Leik lokið

 Hér munum við fylgjast með leik KR og Tindastóls í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deildarinnar.  KR endaði í 2. sæti deildarinnar og Tindastóll í því 7. en liðin hafa þó skipt með sér sigrunum á tímabilinu.  Tindastóll sló KR út í undanúrslitum bikarsins og það getur því allt gerst hér í kvöld. 
20:55 –  Stuðningsmenn KR standa upp fyrir sínum mönnum og klappa fyrir þeim á meðan síðustu sekúndurnar líða.  84-68 eru staðfestar lokatölur.  
 
20:53 – KR klárar leikinn með stæl, forskotið komið upp í 16 stig og minni spámenn komnir á góflið þegar ein mínúta er eftir, sigurinn er í höfn.  82-66.  
 
20:50 – Líklega lengsta sóknin í leiknum.  Tindastóll tók 5 skot og hirtu alltaf sóknarfrákastið en aldrei fór boltinn ofaní, 4 af þessum skotum voru beint undir körfunni.  Það er alveg ljóst hvoru meginn hlutirnir eru að detta í kvöld.
 
20:45 – KR með tvo risa þrista á stuttum tíma og Bárður Eyþórsson tekur leikhlé fyrir KR.  Það voru félagarnir Dejan Sencanski og Robert Ferguson sem settu þristana. 75-63 fyrir KR.  
 
20:40 – KR mætir tilbúið til leiks í fjórða leikhluta og ná forskotinu aftur upp í 9 stig.  Stemmingin er öll með heimaliðinu og þeir hlaupa fagnandi á bekkinn þegar Bárður Eyþórsson tekur leikhlé fyrir Tindastól, 68-59.  
 
20:35 – Á milli leikhlut a er Borgarskotið fræga þar sem menn fá tækifæri til þess að skjóta sér út í heim í boði Iceland Express.  Fjórir tóku skotið í þetta skiptið og ekkert fór ofaní
 
20:34 – Svavar Birgisson með svakalega innkomu og á seinustu 5 stig þriðja leikhluta.  Það munari því aðeins þremur stigum þegar flautað er til loka þriðja leikhluta, 60-57.  
 
20:26 – Joshua Brown fær sína fjórðu villu.  Allt í einu eru villuvandræðin orðin nokkur fyrir KR en bæði Finnur Atli og Robert Ferguson eru með þrjár villur.  
 
20:24 – Emil Þór Jóhannsson stal boltanum af Curtis Allen þar sem hann ætlaði að láta boltan rúlla áður en hann tæki hann í leik þegar hann var að taka boltan upp völlinn.  Emil stakk hann af og tróð boltanum með annari hendi við mikinn fögnuð í húsinu, 57-46.  
 
20:20 – Joshua Brown og Finnur Atli eru báðir búnir að fá tvær villur í upphafi þriðja leikhluta og eru því komnir með 3 villur hvor.  KR liðið virðist vera að láta dómarana fara eitthvað í taugarnar á sér á upphafsmínútum seinni hál
 
20:15 – KR byrjar seinni hálfleik af krafti.  Finnur Atli Magnússon var að enda við að setja svokallað "four point play" en Maurice MIller braut á honum í þriggja stiga skoti sem hann nýtti og fékk víti að auki. Það er ekki á hverjum degi sem menn sjá tveggja metra menn setja four point play…
 
20:10 – Robert Ferguson spilaði aðeins 10 mínútur í fyrri hálfleik en hann var fljótur að koma sér í villuvandræði.  Á hinum enda vallarins er Igor Tratnik í sama vanda, kominn með 3 villur og það á aðeins tæpega 7 mínútum.  Aðeins einn annar leikmaður er kominn með 2 villur og aðrir eina eða enga.  Leikurinn hefuru verið dæmdur af miklum sóma en það eru félagarnir Kristinn Óskarsson og Davíð Hreiðarsson sem dæma leikinn
 
19:57 – KR leiða með 14 stigum í hálfleik, 46-32.  Bárður Eyþórsson var sjáanlega ekki sáttur með seinustu tilraun Tindastóls á lokasekúndunum og lét teiknispjaldið sitt finna fyrir því.  Stigahæstur í liði KR er Joshua Brown með 11 stig en næstir eru Dejan Sencanski og Robert Ferguson með 8 stig hvor.  Hjá Tindastól er Maruice Miller stigahæstur með 9 stig en næstu menn eru Svavar Birgisson með 6 stig og Helgi Rafn með 5 stig.  
 
19:54 – Þröstur Leó Jóhannsson var rétt í þessu að verja sniðskot frá Joshua Brown.  Þröstur sýndi gleði sína í verki og stóð yfir Joshua og öskraði af öllum krafti.  Þröstur uppskar tiltal frá dómurum leiksins. Hrafn Kristjánsson gerði vel og tók leikhlé fyrir KR.
 
19:49 – Stigaskorið dreifist vel hjá báðum liðum en sjö leikmenn eru komnir á blað hjá KR en sex hjá Tindastól.  Forskot KR er 9 stig 39-30 þegar Tindastóll tekur leikhlé og tvær mínútur eru eftir af fyrri hálfleik. 
 
19:46 – Hreggviður Magnússon er mættur aftur úr meiðslum en hann hefur skorað 4 seinustu stig KR.  Heimamenn eru sex stigum yfir, 34-28.  
 
19:42 – Bárður tekur leikhlé fyrir Tindastól þegar það eru fjórar mínútur liðnar af öðrum leikhluta.   KR hefur fimm stiga forskot, 30-25.  Skotin eru ekki að detta hjá Tindastól en Curtis Allen hefur tekið tvö seinustu skot gestana sem geiguðu bæði.  
 
19:28 – Tindastóll minnkar muninn niður í 1 stig, 25-24.  Igor Tratnik fór loksins að sýna sitt rétta andlit, setti þrist og átti flott stopp á hinum enda vallarins í næstu sókn.
 
19:29 – 23-19 eftir fyrsta leikhluta.  KR tók við sér eftir leikhlé og juku forskotið hægt og rólega aftur.  Tindastóll hefur þurft að hafa mikið fyrir sínum stigum og hafa fundið fyrir því trekk í trekk að vera ekki nógu fljótir til baka.  
 
19:22 – KR tekur leikhlé.  Heimamenn voru komnir með 6 stiga forskot, 10-4, en Tindastóll vaknaði þá af værum blundi og jafnaði leikinn á innan við mínútu. 10-10.  Hrafn Kristjánsson tekur svo leikhlé fyrir KR í stöðunni 12-12. 
 
19:17 – Robert Ferguson var að fara illa með Curtis Allen en hann elti Curtis uppi í hraðaupphlaupi og varði troð-tilraun hans með glæsibrag.  6-0 fyrir KR.  Friðrik Hreinsson er ekki alveg vaknaður til lífsins og hefur farið tvisvar sinnum með boltan aftur fyrir miðju á fyrstu þremur mínútum leiksins. 
 
19:13 Byrjunarliðin eru klár.  KR :  Dejan, Robert, Emil, Finnur og Joshua.  Tindastóll : Curtis, Maurice, Þröstur, Friðrik og Helgi Rafn.  
 
 
19:07 –  Kynnirinn í DHL-höllinni kynnir liðin til leiks.  Pallarnir eru við það að fyllast og búast má við virkilega góðri stemmingu hérna í kvöld.  Hreggviður Magnússon tók þátt í upphitun og getum við því gert að hann taki þátt í leiknum þrátt fyrir nokkur meiðsli uppá síðkastið.  
Fréttir
- Auglýsing -