Dejan Sencanski byrjaði leikinn af krafti með alvöru troðslu við mikinn fögnuð KR-inga. Heimamenn komust í 6-0 eftir tvær mínútur af leik en Tindastóll var að fara illa með fyrstu sóknirnar sínar og voru að henda boltaum full klaufalega frá sér á upphafsmínútunum. Þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður höfðu KR-ingar yfir 10-4. Tindastóll var hins vegar búinn að jafan stuttu seinna í stöðunni 10-10. Hrafn Kristjánsson tók leikhlé í stöðunni 12-12 og leikmenn KR tóku aftur við sér eftir það. Þegar mínúta var eftir af fyrsta leikhluta höfðu þeir 4 stiga forskot, 21-17.
Tindastóll vann niður muninn á fyrstu mínútum annars leikhluta. Þegar rúmlega tvær mínútur voru liðnar munaði einu stigi á liðunum, 25-24. Robert Ferguson fékk sína þriðju villu áður en annar leikhluti var hálfnaður þegar hann stökk upp á móti Helga Rafni sem átti greiða leið uppí sniðskot. Þegar fjórar mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta tók Bárður Eyþórsson leikhlé fyrir Tindastól í stöðunni 30-25. Stemmingin var öll með liði KR og þeir nýttu sér það vel. Þegar það voru tæplega þrjár mínútur voru eftur höfðu þeir náð 8 stiga forskoti, 36-28. Stuttu seinna setti Emil Þór Jóhannsson stóran þrist fyrir KR og jók muninn upp í 14 stig, 44-32. KR fór með það forskot inní hálfleik þegar bæði lið höfðu bætt við tveimur stigum, 46-32.
Stigahæstur í liði KR í hálfleik var Joshua Brown með 11 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar en næstu menn voru Dejan Sencanski og Robert Ferguson með 8 stig hvor. Í liði Tindastóls var Maurice Miller stigahæstur með 9 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar en næstu menn voru Svavar Birgisson með 6 stig og Helgi Rafn Viggóssonmeð 5 stig.
Liðin skiptust á að skora í upphafi þriðja leikhluta en Tindastóll minnkaði þó muninn hægt og rólega. Þegar rúmlega fjórar mínútur voru liðnar höfðu þeir minnkað muninn niður í 11 stig, 54-43. Joshua Brown og Finnur Atli voru báðir komnir upp í þrjár villur þegar þriðji leikhlut var hálfnaður og voru þá þrír byrjunarliðsmenn KR komnir með þrjár villur. Joshua Brown fékk sína fjórðu villu þegar fjórar mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Tindastóll gaf hvergi eftir og þeir höfðu minnkað muninn niður í 7 stig, 57-50, stuttu eftir að Joshua Brown fékk að hvíla sig sökum villuvandræða. Svavar Birgisson átti svakalega innkomu í lok þriðja leikhluta og skoraði 5 seinustu stig leikhlutans. Svavar minnkaði því forskot KR niður í 3 stig með glæsilegu þriggja stiga skoti og sniðskoti stuttu seinna, 60-57. Það munaði því aðeins þremur stigum þegar einn leikhluti var eftir.
KR mætti þó af fullum krafti í fjórða leikhluta og höfðu náð forskotinu aftur upp í 9 stig eftir rétt rúmar tvær mínútur, 68-59. Bárður Eyþórsson tók þá leikhlé fyrir Tindastól á meðan KR fagnaði vel og innilega á leiðinni á bekkinn. Tindastóll var fljótur að refsa og skoruðu 4 næstu stig leiksins á örskammri stundu. Dejan Sencanski svaraði því þó um hæl með glæsilegum þrist nokkuð fyrir utan og forskot heimamanna því ennþá 9 stig, 72-63. KR tók þá af rás og litu hvergi til baka. Bárður tók aftur leikhlé fyrir KR í stöðunni 77-63 og aðeins þrjár mínútur eftir af leiknum. Það var sama hvað Tindastóll reyndi og gerði, þeir tóku sóknarfráköstin en tókst bara ekki að nýta sér það. Forskot KR var komið upp í 16 stig þegar ein og hálf mínúta var eftir, 82-66. KR sigldi svo sigrinum heim á lokamínútunnu og uppskáru mikinn fögnuð frá stuðningsmönnum sínum, 84-68.
Punktar úr leik kvöldsins :
– Igor Tratnik er langt frá sínu besta með liði Tindastóls þessa dagana og spilaði aðeins 11 mínútur í kvöld
– Svavar Birgisson spilaði minna en Igor eða rúmlega 9 mínútur en honum tókst samt sem áður að skora 11 stig og taka 4 fráköst.
– Aðeins Dejan Sencanski spilaði meira en Emil Þór Jóhannsson í liði KR í kvöld sem hefur komið sér í lykil hlutverk í KR liðinu í síðustu leikjum eftir að hafa verið að glíma við meiðsli hluta úr vetri.
– Joshua Brown, leikstjórnandi KR, tók flest fráköst á vellinum í kvöld, 12 stykki, en Joshua telst ekki til stórra manna í körfubolta.
– Finnur Atli Magnússon var grátlega nálægt þrefaldri tvennu í kvöld en hann skoraði 11 stig, hirti 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar sem er 5,5 fleiri stoðsendingar en hann hefur gefið að meðaltali í vetur.
Umfjöllun : [email protected]
Mynd : [email protected]




