Hvað var það sem vantaði uppá til þess að stela sigrinum hérna í kvöld?
"Það vantaði bara smá meiri neista, að menn væru tilbúnir í þennan leik, alveg frá byrjun. Byrjuðum svolítið illa en komum svo vel inní þetta. Við áttum að gera miklu betur þegar við vorum komnir í rassgatið á þeim, 3 stig eða 2 stig, ég man ekki hvort það var en við áttum að gera miklu betur".
Er það heimavöllurinn sem mun gera gæfumuninn á sunnudaginn?
" Þú sérð það nú að við erum með flottan stuðning hérna, við eigum helminginn í húsinu hérna. Við erum glæsilegan stuðning hérna fyrir sunnan. Við erum með flottan stuðning heima líka og við komum hingað aftur hingað á fimmtudaginn í næstu viku".
umfjöllun: [email protected]
Mynd: [email protected]




