HomeFréttirGatorade-leikmaður 21. umferðar: Emil Þór Jóhannsson

Gatorade-leikmaður 21. umferðar: Emil Þór Jóhannsson

Þrír þristar á 90 sekúndum reyndust banabiti Hauka og þar var að verki Emil Þór Jóhannsson sem Karfan.is hefur valið sem Gatorade-leikmann 21. umferðar í Iceland Express deild karla. Við erum aðeins eftirá með afhendingarnar en það gerir þetta bara meira spennandi.
 
Emil gerði 13 stig í leiknum gegn Haukum en um mikinn slag var að ræða þar sem Emil var klárlega það sem skildi liðin að. Kappinn er að hrökkva í gírinn um þessar mundir og átti t.d. glimrandi leik með KR í fyrsta leik úrslitakeppninnar þegar KR lagði Tindastól.
 
Fréttir
- Auglýsing -