HomeFréttirEndaspretturinn var Þórsara

Endaspretturinn var Þórsara

Þór tók á móti Snæfell í kvöld í Icelandic Glacial höllinni en þetta var fyrsta viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar. Leikurinn fór rólega af stað og jafnræði var með liðunum fyrstu þrjár mínúturnar en þá tók Snæfell öll tök á leiknum og keyrðu yfir heimamenn. Snæfell hitti nánast úr öllum skotum sem þeir tóku og virtust ætla að valta yfir Þórsara. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 14-25 gestunum í vil.
Snæfell héldu áfram áfram að keyra yfir heimamenn í byrjun 2. leikhluta og komust 16 stigum yfir. Þá vöknuðu heimamenn og bættu aðeins vörnina hjá sér. Þór minnkaði muninn hægt og rólega fram að hálfleik. Staðan í hálfleik var 32-40 Snæfell í vil. Snæfell voru búnir að vera miklu betri stóran part af fyrri hálfleik. Þórsarar virtust hálf stressaðir og voru ekki að setja niður skotin sín. Varnarleikurinn hjá heimamönnum var langt frá því góður.
 
Þórsarar komu sterkir eftir hálfleikinn og náðu að minnka muninn í fimm stig strax í byrjun þriðja leikhluta. Darrin Govens var mjög sterkur á þessum kafla. Snæfellingarnir náðu þá að snúa leiknum sér í vil og juku forskotið jafnt og þétt. Snæfell náði mest 16 stiga forskoti þegar að ein og hálf mínúta var eftir af 3. leikhluta. Þórsarar löguðu aðeins stöðuna undir lokin. Staðan eftir 3. leikhluta var 53-65 Sneæfell í vil.
 
Liðin skiptust á að skora í byrjun loka leikhlutans. Þegar um sjö mínútur voru eftir skelltu heimamenn í lás í vörninni og fóru að éta upp forskot gestana. Gummi skellti niður stórum þrist og minnkaði muninn í 5 stig. Blagoj setti svo niður tvo stig og jafnaði leikinn 72-72 þegar 3 mínútur voru eftir af leiknum og allt vitlaust í stúkunni. Í stöðunni 76-75 kom risa þristur frá fjallinu (Baldur Þór) sjálfu og staðan orðin 79-75 Þór í vil. Pálmi setti svo niður tvo víti. Óíþrómannsleg villa var svo dæmd á Quincy þegar hann braut á Gumma. Gummi setti niður bæði vítin. Snæfell tapaði svo boltanum og brotið var á Darren sem setti niður seinna vítið. Hafþór átti svo loka skotið sem geigaði og fimm stiga sigur Þórsara staðreynd. Lokastaðan var 82-77.
 
Þórsarar fara því með 1-0 forystu í einvíginu í Stykkishólm í leik númer tvö sem er á mánudag, 2. apríl.
Gríðarleg stemmning var í húsinu og þakið margoft við það að rifna af. Græni drekinn lét vel í sér heyra og voru þeir með mikil og skemmtileg læti. Þeir hættu aldrei að styðja við bakið á Þórsliðinu sem í kvöld landaði sínum fyrsta sigri í sínum fyrsta leik í sinni fyrstu úrslitakeppni úrvalsdeildar.
 
Dómarar leiksins voru Rögnvaldur Hreiðarsson og Jón Guðmundsson og komust þeir vel frá erfiðu verkefni. Rúnar Birgir Gíslason var eftirlitsdómari.
 
Atkvæðamestir heimamanna voru Darren Govens 23 stig/6 fráköst og 7 stoðsendingar. Hairston 19 stig og 12 fráköst. Blagoj12 stig og 6 fráköst. Grétar 11 stig og 4 fráköst. Gummi 8 stig og 6 fráköst. Baldur Þór 7 stig og 3 stoðsendingar. Darri 2 stig og 4 fráköst.
 
Atkvæðamestir hjá Snæfell voru Jón Ólafur sem var alveg frábær í leiknum með 22 stig og 7 fráköst. Pálmi 17 stig og 6 fráköst. Marquis Hall 14 stig/6 fráköst/6 stoðsendingar. Hafþór 9 stig. Quincy 7 stig og 10 fráköst. Sveinn 5 stig. Ólafur 3 stig og 7 fráköst.
 
Mynd/ Hjalti Vignis
Umfjöllun/ Hákon Hjartarson  
Fréttir
- Auglýsing -