HomeFréttirNjarðvík í úrslit eftir 1 stigs sigur

Njarðvík í úrslit eftir 1 stigs sigur

   Leikur 4 í undanúrslitaeinvígi Njarðvíkur og Snæfells fór fram í Stykkishólmi en Njarðvík hafði yfirhöndina í einvíginu 2-1 og því úrslitaleikur fyrir Snæfell að hanga inni einn leik til. Mikil stemming var í stúkunni, hvatning og læti, en misjafn hvert fólk beindi orkunni. Leikurinn var heilt yfir sveiflukenndur en Snæfell leiddi meira i leiknum en það fór svo að eitt stig skildi að undir lokin og var það Njarðvíkurmegin 78-79 og ekki þörf á oddaleik og hörkueinvígi lokið.
Það var ekkert skorað í upphafi leiks og liðin einbeittu sér að varnarleiknum í tvær mínútur þar sem ekkert var skorað. Staðan var 4-4 eftir 5 mínútur en Jordan Murphree smellti þá þrist fyrir Snæfell sem kveikti örlítið ljós og komust þær úr því í 14-6 og svo 16-8 sem var staðan eftir fyrsta hluta. Njarðvíkurstúlkur voru að missa boltann og Snæfell nýtti sér það vel.
 
Snæfellstúlkur komust í 21-10 í upphafi annars hluta og virtust hafa allt á hreinu á vellinum og Jordan komin með þrjá þrista. Njarðvík settu heldur betur í fimmta gírinn eftir að Ingi Þór fékk tæknivillu og komust yfir 23-24 þar sem ógæfan elti Snæfell um allan völl og þær misstu boltann í pressu Njarðvíkur hvað eftir annað svo að þær komust í 23-28 og 18-2 áhlaup gríðarsterkt eftir slaka byrjun grænna. Snæfell náði áttum og fóru að stela boltanum og komu til baka yfir miðjan hlutann komust yfir 34-33 og fóru í hálfleikinn með 40-35 eftir hörku síðustu mínútuna.
 
Hjá Snæfelli var jordan Murphree komin með 17 stig og 4 fráköst. Kieraah Marlow 12 stig. Í liðið Njarðvíkur var Lele Hardy með 13 stig og 11 fráköst en Shanae Baker Brice 11 stig. Snæfell hafði náð 11-0 áhlaupi í fyrri hálfleik en Njarðvík 10-0.
 
Strax í upphafi seinni hálfleiks smellti Petrúnella góðum tveimur fyrir Njarðvík og staðan 40-37 en þá tók Hildur Björg sig til og skorðaði næstu 8 stig fyrir Snæfell og staðan 48-40 fyrir Snæfell en Petrúnella átti einn góðann þrist á milli og var hressust gestanna. Snæfell leiddi fram hlutann þriðja og voru 11 stigum yfir 58-47 þegar Njarðvík sótti á 58-55 með góðum leik. Staðan var naum síðustu mínútuna þar sem Snæfell leiddi með 1 – 3 stigum. 64-64 var staðan með fjórða hluta eftir og rafmagnað andrúmsloftið í Hólminum.
 
Jafnt var í upphafi fjórða fjórðungs 68-68 og leikhlutinn farinn að minna á fyrsta hluta þar sem lítið fór fyrir skori fyrtsu mínúturnar en Snæfell stökk svo af stað og komst í 74-68. Njarðvík treysti mikið á Shanae Baker Brice sem átti að taka skotin eða þá Lele Hardy en skotin fóru ekki niður og Snæfell náðu fráköstum. Njarðvík náðu að jafna 74-74 með hörku hjá Shanae Baker og Lele Hardy smellti svo þremur 74-77 og 1:23 eftir. Þetta gerði það að verkum að Njarðvík settist í bílstjórasætið lokamínútuna. 
 
Lele Hardy kláraði víti 76-79 þegar 40 sekúndur voru eftir og Kieraah Marlow minnkaði muninn í eitt stig 78-79 þegar tæpar 30 sekúndur voru eftir. Njarðvík hóf sóknina með 4 sekúndna mun á tíma og skotklukku og leyfðu tímanum að rúlla. Lele Hardy átti skot þegar 8 sek voru eftir og Shanae Baker náði frákasti, tíminn rann út og Njarðvík sigraði með einu stigi 78-79 í hörkuleik og fara 3-1 úr þessu einvígi og mæta Haukum í úrslitaeinvígi Iceland express deildar kvenna á meðan Snæfell hefur lokið leik þetta tímabilið.
 
Snæfell:
Hildur Björg Kjartansdóttir 22/3 frák. Jordan Murphree 22/13 frák/4 stoðs/4 stolnir. Kieraah Marlow 16/3 frák/4 stoðs. Alda Leif Jónsdóttir 9/4 frák/4 stoðs. Berglind Gunnarsdóttir 5. Hildur Sigurðardóttir 4/7frák/4 stoðs. Helga Hjördís Björgvinsdóttir 0/4 frák. Ellen Alfa Högnadóttir 0/4 frák. Björg Guðrún Einarsdóttir 0. Sara Mjöll Magnúsdóttir 0. Rósa Kristín Indriðadóttir 0. Aníta Rún Sæþórsdóttir 0.
 
Njarðvík:
Lele Hardy 27/23. Shanae Baker-Brice 27/6 frák/ 4 stoðs/3 stolnir. Petrúnella Skúladóttir 19/5 frák/4 stolnir. Ólöf Helga Pálsdóttir 4. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 2/4 frák/6 stoðs. Harpa Hallgrímsdóttir 0. Andrea Björt Ólafsdóttir 0. Salbjörg Sævarsdóttir 0. Ína María Einarsdóttir 0. Eyrún Líf Sigurðardóttir 0. Aníta Carter Kristmundsdóttir 0. Erna Hákonardóttir 0. 
 
Símon B. Hjaltalín.
 
Fréttir
- Auglýsing -